Frumvarp í flýtimeðferð 8. desember 2005 02:00 Fragtflugvél Air Atlanta. Áhyggjur FÍA beinast einnig að því að samkeppnisstaða íslenskra flugfélaga sé ójöfn vegna þess að sum flugfélög eigi þess kost að nýta sér starfsmannaleigur. Þessi umsvif skili sér ekki í sköttum. "
Okkur þykir frumvarpið vera illa unnið og ekki taka almennilega á þessum málum," segir Halldór Þ. Sigurðsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, og á þar við frumvarp um starfsmannaleigur sem nú bíður afgreiðslu Alþingis. "Við höfum verið að kvarta yfir því að samkeppnisstaða flugfélaga sé ekki jöfn í ljósi þess að sumir geta ráðið fólk í gegnum áhafnaleigur þar sem þeir skila ekki sköttum af þessari starfssemi til landsins eins og ríkisskattstjóri telur að eigi að gera," segir Halldór. Hann bendir á að leitað hafi verið umsagnar FÍA um frumvarpið en þegar á hólminn var komið hafi þeim verið tilkynnt að of seint væri að gera breytingar á frumvarpinu. "Þetta fær gífurlega flýtimeðferð í gegnum þingið." Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, kveðst geta tekið undir áhyggjur atvinnuflugmanna af þessum málum og að ósekju hefðu línurnar í frumvarpinu mátt vera skýrari. "Þetta varð lendingin. Lengra varð ekki komist í þessari sátt sem reynt var að ná um að keyra þetta í gegn núna," segir Sævar og bætir við: "Aftur á móti eru sjómenn mun betur settir að því leyti að það eru alveg skýrar línur um það hvenær þeir vinna samkvæmt íslensku kjarasamningum. Ef þeir eru um borð í íslensku skipi þá eru þeir á íslenskum kjarasamningum," segir Sævar. Öðru máli gegnir um sjómenn sem sigla á íslenskum leiguskipum sem ekki eru í reglulegum siglingum til og frá landinu, en yfir þá starfsemi ná ekki íslenskir kjarasamningar, segir Sævar. Þar gildi svipað og um flugáhafnir íslenskra fyrirtækja sem nýti sér starfsmannaleigur.
Innlent Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Sjá meira