HM í sveskjusteinaspýtingum 17. júlí 2005 00:01
Franskir dagar hefjast á Fáskrúðsfirði innan fárra daga. Þeir verða haldnir dagana 21. – 24. júlí og er þetta í tíunda sinn sem hátíðin er haldin. Markmið Franskra daga er að minnast fiskimanna frá Frakklandi og sjósóknar þeirra hér við land en helsta bækistöð þeirra var á Fáskrúðsfirði. Fjölmargir brottfluttir Fáskrúðsfirðingar leita á heimaslóðir á Frönskum dögum og austfirskum gestum hefur fjölgað ár frá ári. Franskir gestir frá vinabænum Gravelines og frá franska sendiráðinu á Íslandi sækja hátíðina ár hvert. Þeir eru meðal annars viðstaddir minningarathöfn í franska grafreitnum utan við kauptúnið. Þar er lagður blómsveigur frá sendiráðinu að minnisvarða um franska og belgíska sjómenn sem létust hér við land. Dagskrá Franskra daga 2005 er mjög fjölbreytt og eru þeir fyrst og fremst hugsaðir sem fjölskylduhátíð. Boðið er upp á metnaðarfulla menningardagskrá sem inniheldur m.a. listsýningar í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar en þar munu bæði íslenskir og franskir listamenn sýna verk sín. Raggi Bjarna, Berþór Pálsson og Þorgeir Ástvaldsson halda tónleika í Fáskrúðsfjarðarkirkju þar sem þeir flytja bæði íslensk og erlend lög. Í miðbænum er tjaldmarkaður, leiktæki fyrir börnin og fjölbreytt skemmtiatriði á útisviðinu. Á föstudagskvöldinu er varðeldur ásamt brekkusöng og flugeldasýningu. Aðrir fastir liðir eru svo m.a. dorgveiðikeppni, heimsmeistaramót í sveskjusteinaspýtingum og Íslandsmeistaramót í Pétanque. Þá má geta þess að hópur hjólreiðamanna frá Fáskrúðsfirði er nú að hjóla frá Reykjavík í tilefni þess að Franskir dagar eru nú haldnir í tíu skiptið. Hægt er að skoða dagskrána og lesa um helstu viðburði á síðunni www.austurbyggd.is/dagskrain2005
Innlent Menning Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Lífið samstarf Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira