Starfsmenn Ísal/Alcan lýsa yfir andstyggð á starfsmannastefnu fyrirtækisins 30. desember 2005 13:56
Starfsmenn á aðalverkstæði Ísal/Alcan funduðu í morgun vegna þess að einum starfsmanni fyrirtækisins var sagt upp fyrirvaralaust. Starfsmaðurinn sem hefur unnið hjá fyrirtækinu í mörg ár var kallaður fyrirvaralaust til yfirmanns og tilkynnt um brottrekstur án skýringa að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fundinum. Í tilkynningunni segir orðrétt: Í gær var enn einum vinnufélaga okkar sagt upp störfum fyrirvaralaust og án þess að hann fengi nokkra skýringu á ástæðu uppsagnar þó eftir því væri leitað. Aðferðin sem Ísal / Alcan hefur beitt frá því að samningar voru gerðir við uppsagnir gagnvart þeim sem ekki eru þóknanlegir yfirmönnum er þessi: Starfsmaður er boðaður fyrirvaralaust á fund yfirmanns og starfsmannastjóra og tilkynnt um brottrekstur sem komi tafarlaust til framkvæmda. Starfsmaður fær enga skýringu á uppsögn þó eftir því sé leitað. Starfsmanni er bannað að fara á vinnustað sinn til að sækja persónulega muni og kveðja vinnufélaga. Starfsmanni er skipað að yfirgefa umráðasvæði fyrirtækisins þegar í stað og það er framkvæmt undir eftirliti fulltrúa þess. Þessi framkoma stjórnenda fyrirtækisins hefur valdið miklum ugg meðal starfsmanna um atvinnuöryggi og að þeir verði einnig meðhöndlaðir sem brotamenn ef skoðanir þeirra falla ekki í geð yfirmanna. Fundurinn bendir á að með þessari uppsagnaraðferð er fyrirtækið að ganga þvert á skrifaða stefnu fyrirtækisins og þar að auki að brjóta gerðan kjarasamning. Með gerðum sínum hefur fyrirtækið brotið gegn eftirfarandi yfirlýsingu sem er hluti af kjarasamningi milli aðila. Ekki náðist í forsvarsmenn Alcan vegna málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira