Eigum erindi út fyrir 101 8. nóvember 2005 06:00 Viðar Þorsteinsson og Brot af Nýhil. Viðar segir samninginn við Landsbankann hjálpa Nýhil að starfa áfram sem grasrótarhreyfing.
Landsbanki Ísland og grasrótarhreyfingin Nýhil hafa handsalað samning um að bankinn kaupi tæplega 1200 bækur úr ritröðinni Norrænar bókmenntir sem kemur út innan skamms. Bækurnar hefur bankinn hugsað sér að gefa öllum bókasöfnum í framhaldsskólum og á landsbyggðinni. "Við erum hæstánægð með þennan samning," segir Þór Steinarsson, markaðsstjóri Nýhil. "Þetta er stór hluti af upplaginu og gefur okkur þannig ágætt svigrúm." Félagsskapurinn hefur hingað til verið eins konar regnhlíf fyrir sjálfsútgáfu en til stendur að taka útgáfuna fastari tökum. Viðar Þorsteinsson, einn af forsvarsmönnum félagsskaparins, segir Nýhil þó ekki vera að breytast í formlegt útgáfufélag. "Þessi samningur hjálpar okkur einmitt að starfa áfram sem grasrótar- og framúrstefnuhreyfing, sem hafa almennt ekki jafn mikla dreifingar- og sölumöguleika og hefðbundin forlög." Viðar kveðst afar ánægður með að Landsbankinn ætli að gefa bækurnar bókasöfnum úti á landi því hingað til hefur sala á bókum Nýhil verið bundin við kaffihús og bari í miðborg Reykjavíkur. "Oft er talað um gjá milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarinnar en Nýhil á erindi við alla Íslendinga, hvort sem er úti á landi eða í 101 Reykjavík. Það er hins vegar margt sem gerir það erfitt að brúa bilið þarna á milli, til dæmis er það sem við erum að gera ekki ofarlega á forgangslista minni bókasafna með takmörkuð fjárráð. Þessi samningur gerir okkur því kleift að ná til fleiri." Viðar viðurkennir að það sé fólgin viss mótsögn í því að grasrótarhreyfing reiði sig á fjármálafyrirtæki til að halda sér við. "Það er að vissu leyti einkenni á okkar samtíma. Íslensk grasrótarlist verður sífellt háðari stórfyrirtækjum, Klink og Bank er besta dæmið um það. Á meðan ríkið sinnir þessum geira ekki hafa fjármálafyrirtæki áttað sig á að það er heilmikið vit í því að styrkja grasrótarlist. Þótt við deilum ekki endilega markmiðum og hugmyndum þessara stofnana getum við nýtt okkur þá hagsmuni sem fara saman," segir Viðar. "Það getur vissulega verið áhættusamt og hvort þetta dragi úr okkur tennurnar eða ekki verður tíminn að leiða í ljós." Ritröðin Norrænar bókmenntir samanstendur af níu ljóðabókum jafnmargra skálda og kemur út í tvennu lagi. Fyrstu fjórar bækurnar koma út í þessum mánuði en hinar fimm í apríl.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira