100 þúsund manna borg í hættu 22. ágúst 2005 00:01
Illa hefur gengið að ráða niðurlögum skógareldanna í Portúgal og sendi ríkisstjórn landsins út hjálparbeiðni til nágrannaþjóða sinna um helgina. Nokkrar Evrópuþjóðir hafa þegar brugðist við ákallinu og sendu Frakkar og Spánverjar hvorir um sig tvær flugvélar til Portúgal, sem nota má til slökkvistarfa. Ítalir sendu eina vél í gær. Þjóðverjar hafa sagst munu senda þrjár lögregluþyrlur með sérfræðingum sem aðstoða eigi portúgalska slökkviliðsmenn. Alls berjast 2700 slökkviliðsmenn við eldana sem geisa á 27 stöðum víðs vegar um Portúgal. Fimmtán manns hafa látið lífið og 140 þúsund hektarar lands orðið eldinum að bráð. Mið- og norðurhluti Portúgal hafa orðið verst úti í eldunum og hefur þurft að rýma fjölda þorpa. Alvarlegustu skógareldarnir um helgina voru í Coimbra héraði tæplega 200 kílómetra norður af höfuðborginni Lissabon. Skógareldarnir nálgast nú stærstu borgar héraðisins, úr tveimur áttum og þegar hafa yfir tíu hús skemmst í úthverfi borgarinnar. Nokkur hverfi hafa verið rýmd, en íbúar eru um 100 þúsund og er borgin hin þriðja stærsta í Portúgal. Reykur og eldtungur sjást alla leið til Lissabon Mestu þurrkar frá upphafi mælinga eru nú í Portúgal og gífurlegir hitar hafa verið að undanförnu. Miklir vindar blésu að nýju í glæður skógareldanna um helgina sem slökktir höfðu verið um miðja síðustu viku. Skilyrði til slökkvistarfa næstu daga eru erfið því áfram er spáð miklum hita og roki fram á miðvikudag þegar vonast er eftir úrkomu.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira