Blóðugur sólarhringur í Írak 18. september 2005 00:01
Að minsta kosti 30 manns féllu þegar bílsprengja sprakk á markaði í hverfi Sjíta í skammt frá Bagdad í gærkvöldi. Þá myrtu byssumenn írakskan þingmann í gærkvöldi. Þingmaðurinn, Faris Hussein, féll ásamt þremur lífvörðum sínum, fyrir hendi byssumannanna, en hann var á ferð ásamt öðrum þingmanni, nærri bænum Dujail á leið til höfuðborgarinnar Bagdad. Sá þingmaður særðist í árásinni. Ekki er ljóst hverjir stóðu á bak við tilræðið, en uppreisnarmenn hafa hert árásir sínar í landinu undanfarna daga og hefur á þriðja hundrað manns fallið frá því á miðvikudag. Dagurinn í gær var einn sá blóðugasti í Írak í töluverðan tíma. Auk þeirra 30 sem létu lífið í bílsprengjuárás í hverfi sjíta særðust um fjörutíu manns, þar af margir alvarlega. Bíl, fullum af sprengiefni, hafði verið komið fyrir við ávaxtastand á markaðnum í bænum Nahrawan, sem er í um 30 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni. Hryðjuverkasamtökin al-Qaida í Írak hafa skipulagt ítrekaðar árásir á sjíta, en samtökin hóta frekari árásum. Meira en 200 manns hafa fallið og hundruð særst í árásum al-Qaida að undanförnu.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Sjá meira