Brottflutningur með valdi hafinn 17. ágúst 2005 00:01
Ísraelsher tók í gær að flytja landnema af Gaza-ströndinni á brott með valdi en ekki kom þó til harðra átaka. Ísraelskur landnemi á Vesturbakkanum skaut fjóra Palestínumenn til bana. Á miðnætti í fyrrakvöld rann út fresturinn sem ísraelska ríkisstjórnin hafði gefið íbúum í landnemabyggðum Gaza-svæðisins til flytja burt með góðu. Í gærmorgun biðu stjórnvöld hins vegar ekki boðanna heldur flykktust 14.000 hermenn inn í sex hverfi gyðinga á svæðinu: Morag, Neve Dekalim, Bedolah, Ganei Tal, Tel Katifa og Kerem Atzmona. Undir kvöld höfðu allar byggðirnar verið rýmdar, nema sú stærsta, Neve Dekalim. Þótt ekki hafi komið til harðra átaka á milli hermanna og mótmælenda brottflutningsins í gær eins og margir höfðu spáð var dagurinn engu að síður tilfinningaþrunginn. Grátandi fjölskyldur voru dregnar út af heimilum sínum og settar nauðugar upp í flutningabíla, heittrúaðir gyðingar vafðir í bænasjöl streittust á móti fílefldum hermönnum og í Morag-byggðinni var leikskóli rýmdur. Versta uppákoman varð hins vegar síðdegis á Vesturbakkanum en þá skaut ísraelskur landnemi fjóra Palestínumenn til bana og særði tvo. Maðurinn er sagður hafa hrifsað byssu af hermanni við vegatálma og skotið tvo palestínska farþega í bíl sínum, en hann starfar sem bifreiðastjóri, og síðan skotið þann þriðja sem átti leið þar hjá. Lögregla náði ekki að yfirbuga byssumanninn fyrr en um seinan. Herskáir Palestínumenn hefndu árásarinnar strax í gær og skutu á Morag-byggðina. Enginn meiðsl urðu þó á fólki. Þá kveikti miðaldra kona í sjálfri sér við vegatálma lögreglu á Vesturbakkanum til að mótmæla brottflutningnum og brenndist hún mjög alvarlega. Ariel Sharon forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi aðgerðirnar þyngri en tárum tæki. "Það er mjög erfitt, meira að segja fyrir mig, að horfa á þetta án þess að tárast." Hann skoraði á landnemana að láta af mótþróa sínum. Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, hvatti sitt fólk sömuleiðis til að sýna stillingu svo að flutningarnir gengu sem greiðlegast fyrir sig.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira