Órói á Gasa-ströndinni 17. ágúst 2005 00:01
Skömmu eftir miðnætti réðust óvopnaðir ísraelskir hermenn inn í nokkrar landnemabyggðir á Gasa-ströndinni og tóku til við að flytja landnemana á brott, með góðu eða illu. Frestur til að fara með friði og spekt rann út á miðnætti. Grátur og gnístran tanna voru friðsamlegustu viðbrögðin, víða létu landnemarnir öllum illum látum, grýttu hermennina og létu fúkyrðin fjúka. Drasli og dekkjum var staflað upp og kveikt í. Kona kveikti í sér framan við lögreglustöð og leigubílstjóri myrti farþega sína, tvo Palestínumenn, og annan til á víðavangi. Þrátt fyrir þetta gekk dagurinn betur en yfirvöld höfðu gert ráð fyrir. Undir kvöld var talið að um sextíu prósent landnema hefðu þegar yfirgefið Gasa, mun fleiri en búist hafði verið við. Engu að síður bíða hermannabyggðir þar sem þúsundir ungra harðlínuþjóðernissinna hafa komið sér fyrir og virðast reiðubúnir að láta sverfa til stáls. Þeir eru margir sannfærðir um að guð hafi fært gyðingum í Ísrael þetta landsvæði og að stjórnvöld hafi ekkert með það að gera að afhenda Palestínumönnum það, þó að samkvæmt alþjóðalögum hafi Ísraelsmenn hernumið það fyrir þrjátíu og átta árum. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels og hugmyndasmiðurinn á bak við brotthvarfið, kvaðst hafa tárast þegar hann sá fyrstu myndirnar af landnemum sem yfirgáfu heimili sín í síðasta sinn. Hann sagðist hafa beðið alla að yfirgefa heimili sín með friðsömum hætti og ráðast á lögæsluliðið. Hann bað Gyðinga um að láta þá í friði og ráðast frekar á sig þar sem hann bæi ábyrgð. Palestínumenn fagna tímamótunum en telja björninn þó ekki unninn. Þetta kort skýrir af hverju: Gasa-ströndin er tiltölulega lítið landsvæði þó að þar búi margir. Landnemarnir þar eru þó aðeins taldir hafa verið um átta þúsund og fimm hundruð. Á Vesturbakkanum er málum öðruvísi komið. Þó að fjarlægja eigi nokkrar landnemabyggðir þar óttast margir Palestínumenn að Sharon hyggist fremur herða tökin þar en hitt, enda er um stærra svæði að ræða og þar búa tvö hundruð og fjörutíu þúsund landnemar, sem gerir nærri tíu prósent íbúanna þar.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira