Innlent

Nýr forstjóri Samkeppniseftirlits

Páll Gunnar Pálsson, lögfræðingur, hefur verið ráðinn forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Páll Gunnar starfar nú sem forstjóri Fjármálaeftirlitsins en tekur við sínu nýja starfi 1. júlí þegar stofunin tekur til starfa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórn Samkeppniseftirlitsins. Hin nýja stofnun mun starfa samkvæmt nýjum lögum um samkeppnismál sem afgreidd voru frá Alþingi nú í vor. Samkeppniseftirlitið tekur þá í raun við hlutverki Samkeppnisráðs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×