Býsnast yfir klæðaburði kvenna 14. júní 2005 00:01 "
Ég gerði könnun á þyngd og klæðnaði kvenna um daginn. Ég gekk niður Laugaveginn og taldi. Á leiðinni frá Kjörgarði og að Klapparstígi mætti ég níu konum sem voru yfir kjörþyngd. Þær voru flestar ungar og klæddust yfirleitt síðbuxum og þessum forljótu flíspeysum sem liggur við að séu orðnar þjóðbúningur íslenskra kvenna," segir Guðbjörg Sigurðardóttir Reykvíkingur frá blautu barnsbeini. Hún býr í miðborginni og fylgist vel með mannlífinu og blöskrar klæðaburður kynsystra sinna. Og það eru ekki bara fötin og þyngdin sem fara fyrir brjóstið á Guðbjörgu: "Margar kvennanna eru með hálfgerða herraklippingu og ef þær eru með gleraugu þá eru þau með svörtum, óklæðilegum umgjörðum." Guðbjörg man tímana tvenna í miðborg Reykjavíkur og þegar hún var ung gengu konur í kjólum og kápum. Hún saknar þeirra tíma. "Þegar ég var yngri vogaði maður sér ekki niður í bæ nema vera uppáklæddur. Sem betur fer sér maður uppáklæddar konur innan um en þá eru þær yfirleitt komnar yfir miðjan aldur," segir hún. Guðbjörgu finnst ungir karlmenn orðnir mun meira smart en ungar konur og að auki séu þeir yfirleitt ekki feitir. Og vitaskuld veltir hún fyrir sér hvernig standi nú á þessu og kemst helst að þeirri niðurstöðu að sjálfsvirðing kvenna hafi farið þverrandi með árunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira