Hjartavernd hægir á rannsóknum 7. desember 2005 05:45 Hægja þarf á rannsóknum vegna minnkandi tekna.
Samdráttur í tekjum Hjartaverndar leiðir til þess að hægt verður á framkvæmd rannsóknarverkefna félagsins, að sögn Vilmundar Guðnasonar forstöðulæknis. Samdrátturinn stafar einkum af hinni gríðarlega óhagstæðu gengisþróun og kostnaðarhækkunum innanlands. Í lok janúar næstkomandi verða fimm ár liðin frá því að Öldrunarrannsókn Hjartaverndar hófst. Rannsóknin er samstarfsverkefni Hjartaverndar og bandarískra heilbrigðisyfirvalda og ein stærsta faraldsfræðilega rannsókn á heimsvísu á heilbrigði öldrunar. Í dag hafa hátt í sex þúsund einstaklingar tekið þátt í henni. Á þessari rannsókn verður nú að hægja, sem felur í sér umtalsverða fækkun starfa eða sem nemur 35 starfsmönnum sem nú hefur verið sagt upp. Hjartavernd er með stærstan hluta sinna tekna í erlendum myntum og nánast allan kostnað í krónum. Hefur þetta meðal annars þau áhrif að þeir fjármunir sem áætlað var að nýta til Öldrunarrannsóknarinnar munu ekki nægja. "Við erum áfram með nær fjörutíu manns í vinnu, bæði í þessu verkefni og öðrum," segir Vilmundur. "Við erum með margar rannsóknir auk öldrunarrannsóknarinnar. Núna erum við til dæmis að byrja á nýrri áhættuþáttakönnun. Þá erum við með þjónusturannsóknir fyrir aðra. Meginuppistaðan er náttúrlega öldrunarrannsóknin en við þurfum ekki að hætta við neitt af fyrirhuguðum verkefnum, heldur drögum við saman seglin í tíma, svo við förum ekki í kaf."
Innlent Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Fleiri fréttir Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Sjá meira