Fjórðungur of feitur 26. ágúst 2005 00:01
Bandaríkjamenn fitna nú hraðar en nokkru sinni fyrr en talið er að 64,5 prósent þjóðarinnar séu yfir kjörþyngd. Áróður fyrir heilsusamlegri lifnaðarháttum virðist litlu hafa skilað. Bandaríkjamenn eru feitasta þjóð í heimi og ný rannsókn samtakanna Trust for America's Health sem sagt er frá á heimasíðu BBC bendir til að þeir bæti enn á sig kílóunum. 119 milljónir Bandaríkjamanna eða 64,5 prósent glíma annað hvort við ofþyngd (nokkuð yfir kjörþyngd) eða offitu (umtalsvert yfir kjörþyngd). Á síðasta ári fjölgaði þeim sem glíma við offitu í 48 ríkjum Bandaríkjanna. Aðeins íbúar Oregon-ríkis í norðvesturhluta landsins stóðu í stað í þessum efnum en þar er rúmlega fimmtungur íbúanna of feitur. Hawaii var ekki með í rannsókninni. Á landsvísu fjölgaði offitusjúklingum um tæpt prósentustig, árið 2004 voru 24,5 prósent Bandaríkjamanna of feitir samanborið við 23,7 prósent árið 2004. Í tíu ríkjum er stríðir ríflega fjórðungur íbúanna við sjúklega offitu. Mississippi-búar eru feitastir allra en íbúar Alabama og Vestur-Virginíu fylgja þeim fast á eftir. Slæmt mataræði og almennt hreyfingarleysi er skýringin á þessu holdafari og virðist áróður stjórnvalda fyrir bættari heilsu hafa jafn mikil áhrif og vatnskvettur á gæs. Trust for America's Health telur að árið 2008 verði 73 prósent landsmanna yfir kjörþyngd og þá sé voðinn vís. Offitutengdir sjúkdómar á borð við sykursýki og hjartasjúkdómar myndu sliga heilbrigðiskerfið og kosta skattgreiðendur milljarða dala. Engar líkur eru sagðar á að manneldismarkmið ríkisstjórnarinnar um að minnka offitu um 15 prósent fyrir árið 2010 náist. Holdafar Íslendinga er aðeins skárra, þó ekki mikið. Samkvæmt niðurstöðum Landskönnunar á mataræði 2002 voru um 57 prósent karla og fjörtíu prósent kvenna á aldrinum 15–80 ára yfir kjörþyngd.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Sjá meira