Ekki hægt að tryggja sig 13. júní 2005 00:01
Ekki er hægt að tryggja sig gegn tjóni vegna veggjatítlna hjá tryggingafélögunum og stendur ekki til að bæta þar úr. Þeir eigendur timburhúsa sem fá þessa óboðnu gesti geta þannig staðið uppi með verðlausa húseign. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær eru veggjatítlur vaxandi vandamál í eldri húsum borgarinnar en þær bókstaflega éta upp timburhús komist þær í þau. Kaupendur fjölmargra húsa í miðbæ Reykjavíkur hafa leitað réttar síns vegna mála sem þessara en þar sem í raun engum er að kenna, ber enginn ábyrgð. Bragi Björnsson lögmaður segir að þar sem um minniháttar galla sé að ræða, þ.e. að auðvelt sé að gera við það sem úrskeiðis hefur farið og koma í veg fyrir frekari skaða af völdum veggjatítlnanna, skrifist það á kaupanda. Ef um meiriháttar tjón er að ræða er hins vegar í flestum tilvikum hægt að sækja á seljanda fasteignar um bætur í formi afsláttar. Bragi segir að minnsta kosti þrjá dóma hafa fallið í málum sem þessum hér á landi sem hafa fallið á báða vegu. Hvert mál sé í raun einstakt. Ástand hús og aldur þeirra skipti t.a.m. máli og því sé erfitt að gefa algilda reglu. Eigendur timburhúsa geta ekki tryggt sig gegn tjóni sem þessu, ekki frekar en þegar um náttúruhamfarir er að ræða. Hjálmar Sigurþórsson, framkvæmdastjóri tjónaþjónustu TM, segir undir þessum kringumstæðum helst koma til greina fasteignatrygging en þar sem það sé eðli vátrygginga að tryggja hið skyndilega nær sú trygging ekki yfir atvik af þessu tagi í dag. Og ekki stendur til að breyting verði þar á þó málið verði vissulega skoðað að sögn Hjálmars.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira