Komið í veg fyrir leka 13. júní 2005 00:01
Fjölmennt lið slökkviliðs og lögreglu var í viðbragðsstöðu þegar Lagarfoss, leiguskip Eimskipafélagsins, lagðist að bryggju við Grundartanga í gærmorgun. Komið hafði verið fyrir leka í ammóníaksgámi, sem upp hafði komið þegar skipið var undan ströndum Skotlands, en slökkvilið hafði viðbúnað við höfnina þegar skipið bar að til að tryggja að frekari leki úr gámnum kæmi ekki fram þegar hann yrði affermdur. Ákveðið var að afferma gáminn við Grundartangahöfn þar sem búist var við hagstæðri vindátt á Grundartanga. Skipið kom að bryggju um klukkan tíu og fljótlega var farið að afferma aðra gáma en þann þar sem lekans hafði orðið vart. Um tíu eiturefnakafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru í viðbragðsstöðu. Þegar gámnum hafði verið komið fyrir á öruggu og afgirtu svæði hófu eiturefnakafararnir að afferma gáminn og skiptust þeir á tveir og tveir í einu þar sem um erfitt og vandasamt verk var að ræða. Alls voru fimm stórir ammóníakskútar í gámnum og fljótlega var ljóst að einn þeirra lak. Þegar ljóst var hver þeirra það var, var sá kútur fluttur á sérstakt svæði þar sem komið var fyrir lekann en kúturinn mun hafa lekið út frá lokunarbúnaði kútsins. Birgir Finnsson, sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem stjórnaði starfi á vettvangi, sagði að aðgerðin hefði heppnast vel í alla staði. Viðbúnaður af því tagi sem var við höfnina hafi verið mikill þar sem gæta þurfi fyllsta öryggis þegar um eiturefni af því tagi sem um ræðir er til staðar. Aðgerðum slökkviliðs var lokið upp úr hádegi en Lagarfoss sigldi fljótlega af stað til annarra verkefna eftir að hafa affermt gáminn.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira