Vill láta myrða Chavez 24. ágúst 2005 00:01
Bandarísk stjórnvöld segjast ekki deila skoðunum með sjónvarpspredikaranum Pat Robertson sem stakk upp á því á dögunum að Hugo Chavez, forseti Venesúela, yrði ráðinn af dögum. Robertson er einn helsti leiðtogi strangtrúaðra kristinna Bandaríkjamanna og hefur fylkt þessum hópi að baki George W. Bush forseta. Í sjónvarpsþætti sínum fyrr í vikunni sagði Robertson að ódýrara væri að láta myrða Chavez en að hefja stríð til að losna við hann. Daginn eftir sagði Sean McCormack, talsmaður utanríkisráðuneytisins, að ummæli Robertson væru óviðeigandi og endurspegluðu ekki stefnu ríkisstjórnarinnar. Donald Rumsfeld landvarnaráðherra tók svo í svipaðan streng í gær. Hvorugur þessara manna sá hins vegar ástæðu til að fordæma ummælin. Stjórnvöld í Hvíta húsinu hafa lengi haft horn í síðu hins vinstri sinnaða Chavez sem aftur hefur sakað þau um að ætla að láta ráða sig af dögum. Fyrr á árinu hótaði hann að stöðva olíuútflutning til Bandaríkjanna ef Bush og hans menn gerðu tilraun til að steypa sér af stóli en átta prósent allrar olíu Bandaríkjamanna kemur frá Venesúela. Chavez hefur svarað Robertson fullum hálsi og líkt honum við hund sýktan af hundaæði.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira