Svarthöfði lokar hringnum 13. nóvember 2005 06:00 Star Wars Episode III, DVD
Sumar kvikmyndir eru þess eðlis að manni finnst maður verða að eignast þær. Allar Stjörnustríðsmyndirnar sex eru þannig þó þær séu misjafnar að gæðum. DVD-safn allra fullgildra Star Wars nörda verður nú loks fullkomnað með útkomu Episode III: Revenge of the Sith. Þessi lokamynd seinni Stjörnustríðsþríleiks George Lucas er sú langbesta í seinni bálknum og er því miklum mun eigulegri en Episode I og Episode II sem maður er auðvitað samt löngu búinn að kaupa. Í þessum magnaða lokakafla fylgjumst við með falli Anakins geimgengils sem rís upp sem erkiskúrkurinn Svarthöfði í lok myndar. Fallið er flott og myndin tengir þríleikina tvo smekklega saman þannig að maður er alveg til í að skella Episode IV: A New Hope í spilarann um leið og maður er búinn með Revenge of the Sith. Það er samt ekki síst aukaefnið á DVD-diskunum sem forfallnir Stjörnustríðsaðdáendur eru á höttunum eftir og það er óhætt að segja að Lucas sjái vel um sína. Það er vel staðið að útgáfum Episode III sem kemur á tveimur DVD-diskum. Sá fyrri geymir myndina sjálfa í toppgæðum auk þess sem hægt er að hlusta á Lucas og helstu samstarfsmenn hans ræða gerð myndarinnar á meðan hún rúllar í gegn. Þessi bónus höfðar auðvitað ekki til allra en fyrir okkur sem viljum vita allt um það sem gerist í hausnum á George Lucas er þessi viðbót hvalreki. Annað aukaefni stendur einnig fyllilega fyrir sínu. Tveggja tíma heimildarmynd um allar þær tæknideildir sem koma að gerð Star Wars veitir skemmtilega innsýn í gerð þessara tröllvöxnu tækniundra sem þessar myndir eru. Rúsínan í pylsuendanum eru svo vitaskuld fjórar senur sem komust ekki að í lokaklippi myndarinnar. Hér þurfa Obi-Wan og Anakin meðal annars að horfa upp á General Grievous drepa varnarlausan Jedi-riddara, Padmé þvælist í pólitík með framtíðarleiðtogum uppreisnarmanna og svo fáum við að sjá Yoda stíga frá borði þegar hann kemur í útlegð sína til Dagobah. Allt eru þetta skemmtilegar viðbætur sem hefðu sómt sér vel í myndinni þó Lucas hafi ákveðið að fórna þeim fyrir heildarhagsmunina.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira