14 ára ráðherradómi Davíðs lýkur 27. september 2005 00:01
Ríkisráðsfundur á Bessastöðum klukkan tvö í dag markar endalok á fjórtán ára ráðherradómi Davíðs Oddssonar og pólitískum ferli sem spannar áratugi. Ráðherraskipti verða í þremur ráðuneytum. Davíð Oddsson utanríkisráðherra stígur upp úr ráðherrastól sínum í dag á ríkisráðsfundi að Bessastöðum og í kjölfarið verða ráðherraskipti í þremur ráðuneytum. Í utanríkisráðherrastólinn sest Geir H. Haarde, fjármálaráðherra en Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra tekur við fjármálaráðuneytinu. Einar K. Guðfinnsson er nýliði í ráðherraliði ríkisstjórnarinnar en hann verður sjávarútvegsráðherra. Með þessum breytingum lýkur löngum ferli Davíðs Oddssonar sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Hann gegndi starfi forsætisráðherra frá 13. maí 1991 til 15. september 2004 eða í 13 ár. Jafnhliða forsætisráðherratíð sinni sat Davíð sem ráherra Hagstofu Íslands. Frá 15. september 2004 hefur Davíð gegnt starfi utanríkisráðherra og mun, eins og kunnugt er, nú hverfa til starfa sem seðlabankastjóri. Fréttablaðið hélt því fram í morgun að hádegisverðarboð sem halda átti á undan ríkisráðsfundinum í dag hefði verið blásið af. Að sögn Fréttablaðsins var skýringin sú að Davíð Oddsson hefði ekki séð sér fært að komast í boðið. Fréttastofa Stöðvar tvö og Bylgjunnar fékk þau svör hjá Bolla Þór Bollasyni, ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins, að skýringa megi fremur leita í því að landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, er ekki væntanlegur til landsins fyrr en klukkan eitt. Allir ráðherrar verða að sitja ríkisráðsfundi og því hafi fundinum verið frestað til klukkan tvö og ekkert orðið af matarboðinu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Innlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira