30 þúsund á hápunkti Ljósanætur 4. september 2005 00:01
Talið er að þrjátíu þúsund manns hafi verið á hápunkti Ljósanætur í Reykjanesbæ í gærkvöldi en þá voru ljósin í aðalhlutverki, bæði á Keflavíkurbjargi og þau sem lýstu upp himininn. Ljósanæturhátíðin var nú haldin í sjötta sinn í Reykjanesbæ en upphafið að henni var uppsetning á lýsingu Keflavíkurbjargs. Hátíðin stendur yfir í fjóra daga en hápunktur hennar var í gær. Dagskrárliðir hátíðarinnar voru nær 200 talsins í tónlist, myndlist og afþreyingu. Meðal atriða er stjörnuspor Reykjanesbæjar a la Hollywood. Í þetta sinn voru dægurlagasystkinin Ellý og Vilhjálmur Vilhjálmsbörn heiðruð en stjörnuspor þeirra var afhjúpað fyrir framan veitingahúsið Ránna í Keflavík. Nú var í fyrsta sinn veitt gestastjörnuspor og það var enginn annar en sjálfur Clint Eastwood sem það fékk en koparhella með undirskrift Óskarsverðlaunahafans er staðsett fyrir framan Sambíóin í Keflavík. Gríðarlegur mannfjöldi fylgdist með þessum viðburðum. Meðal stórra atriða í gær var val á Ljósalagi Reykjanesbæjar 2005 og stóð valið á milli þriggja laga. Í stíl við stjörnufans Ljósanætur var það Idol-stjarnan Davíð Smári sem stóð uppi með besta lagið í ár, Haustnótt í Keflavík, lag Halldórs Guðjónssonar við texta Keflavíkurskáldsins Þorsteins Eggertssonar. Steinþór Jónsson, formaður ljósanefndar var að vonum ánægður með hvernig gekk en hann var sérstaklega ánægður með bréf frá Clint Eastwood. Það hefði borist í gær og þar hefði hann þakkað þann heiður sem honum hefði verið sýndur með stjörnusporinu. Það hefði verið mjög gaman að hann hefði séð sér fært að senda kveðjuna. Þrátt fyrir þennan mikla mannfjölda á Ljósanótt var lögreglan mjög ánægð með hvernig til tókst. Óhöpp voru fá og ef áfengi sást á unglingum var tafarlaust haft samband við foreldra þeirra og þeir beðnir um að sækja þá.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Innlent Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Innlent Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Innlent Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Innlent Lokatölur á Akureyri: Sjálfstæðismenn rétt mörðu Bæjarlistann Innlent Fleiri fréttir Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Lokatölur í Eyjafjarðarsveit: F-listinn stækkar meirihlutann Lokatölur úr Hörgársveit: Gróska fékk flest atkvæði Samhenta sveitin með mikinn sigur í Hvalfjarðarsveit Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur þrátt fyrir missi Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Raddir okkar allra unnu stórsigur Lokatölur úr Fjallabyggð: Meirihlutinn heldur velli Lokatölur á Akureyri: Sjálfstæðismenn rétt mörðu Bæjarlistann Lokatölur í Árborg: Sjálfstæðisflokkur hélt hreinum meirihluta Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig Lokatölur í Bláskógabyggð: Það sama upp úr kössunum og síðast Ingibjörg Þóranna hlaut flest atkvæði í Dalabyggð Einar vill Viðreisn frekar en Miðflokkinn Framtíðarlistinn með meirihluta í Súðavíkurhreppi Ábyrgð náði hreinum meirihluta Lokatölur úr Hrunamannahreppi: Meirihluti D-listans heldur velli Lokatölur í Reykjanesbæ: Sjálfstæðismenn fara með stórsigur af hólmi Lokatölur í Hveragerði: Meirihlutinn fallinn Hildur segir nýjan meirihluta þurfa breiða skírskotun Ný sýn hélt meirihluta sínum í Vesturbyggð Sjá meira