Bindin á útleið 13. júlí 2005 00:01
Sú var tíðin að hver einasti karlmaður sem kom nálægt viðskiptum af einhverjum toga bar bindi um hálsinn. Sú tíð er liðin. Æ algengara er að karlmenn gangi bindislausir og þá jafnan með efstu og jafnvel tvær efstu skyrtutölurnar hnepptar frá. Ásgeir Höskuldsson, kaupmaður í herrafataversluninni Hjá Andrési, segir áberandi hve karlar eru miklu frjálslegri í klæðaburði en var og telur ekki nokkra ástæðu til amast yfir þróuninni. "Það sem skiptir máli er að maðurinn sé í heild sinni smekklega klæddur," segir Ásgeir. Hann þekkir það líka af reynslunni að tískan gengur í hringi; allt kemur aftur. "Bindin koma aftur," segir Ásgeir sem sjálfur er vanalega bindislaus í vinnunni en hnýtir þau um hálsinn við fínni tækifæri. Guðbjörg Sigurðardóttir fylgist vel með klæðaburði fólks og hefur gagnrýnt buxna- og flíspeysuklæðnað kvenna í Fréttablaðinu. Hún skilur karlana í viðskiptunum vel. "Ég held að það sé ósköp þægilegt fyrir þá að vera án bindis," segir hún en leggur áherslu á að henni þyki karlmenn almennt fínni og virðulegri með fallegt bindi um hálsinn. "Mér þykja bæði Kári Stefánsson og Jón Ásgeir afskaplega smart. Kári á bolnum undir jakkanum og Jón svona frjálslegur með fráhneppta skyrtuna og síða hárið," segir Guðbjörg. Jón Ásgeir Jóhannesson og Hreinn Loftsson bindislausir.
Innlent Menning Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira