Höfuðstöðvar Eimskips að hóteli 9. júní 2005 00:01
Þar sem áður var leikið með fjöregg þjóðarinnar, þar sem auðmenn landsins réðu ríkjum, býðst nú þreyttum ferðalöngum að hvíla lúin bein. Höfuðstöðvar Eimskips eru orðnar að hóteli. Hakakrossinn setti lengi vel mark sitt á eina voldugustu byggingu borgarinnar. En þar sem áður var merki óskabarns þjóðarinnar stendur nú „1919“, merki hins nýja hótels Í dag var unnið hörðum höndum við lokafrágang enda von á fyrstu gestunum strax á morgun. Hætt er við að fyrrverandi starfsmenn Eimskips þekki ekki lengur gamla anddyri fyrirtækisins, nú þegar það er orðið að gestamóttöku. Viðarinnréttingarnar voru rifnar út og öllu breytt. Fæst herbergjanna eru eins, enda þurfti oft að finna frumlegar lausnir til að geta komið hóteli fyrir í byggingu sem hýsti í yfir áttatíu ár skrifstofur skipafélags. Svart, grátt og hvítt eru ríkjandi litir á hótelinu og hugsanlegt að einhverjum þyki nóg um þegar að vetrardrunginn leggst yfir höfuðborgina. Eigendur hótelsins gera sér hins vegar vonir um vinsældir, nema hvað, að velstæðir, erlendir gestir vilji sofa rótt í miðborginni og svo skemmta sér á barnum þar sem vonir hótelstjórnenda standa til þess að fræga fólkið á Íslendi sæki þegar fram líða stundir. Íslenskur aðall á því ekki að hverfa fyrir fullt og allt úr Eimskipshúsinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira