Nýjar bækur 28. nóvember 2005 22:00
Frá JPV útgáfu er komin bókin Gæfuspor - gildin í lífinu, eftir Gunnar Hersvein. Í Gæfusporum fjallar Gunnar Hersveinn um mannkosti og tilfinningar, stríð og frið og hamingju og rósemd af hugkvæmni og varpar oft óvæntu ljósi á rótgróin hugtök. Markmið bókar hans er m.a. að sýna hversu mikilvægt er að rækta tilfinningar sínar, það er forsenda fyrir velferð hverrar persónu og árangri í lífi og starfi. Í bókinni er einnig fjallað um hvernig einstaklingar geta brugðist við amstri og streitu nútímalífs með viðhorfi sínu til tímans og vilja til að stjórna dagskrá eigin lífs. Markmiðið er að tendra leiðarljós og brýna lesandann til að leita svara við lífsgátunum upp á eigin spýtur. Fjallað er á skýran og greinilegan hátt um tæplega 50 hugtök sem brenna á fólki á lífsleiðinni. Tilfinningar eins og ást, einmanakennd, afbrýðisemi, þakklæti og fyrirgefningu. Dyggðir eins og hugrekki, sjálfsaga og heiðarleika. Lesti eins og hroka, leti og þrjósku. Gunnar Hersveinn hefur getið sér gott orðspor fyrir vandaða umfjöllun um gildin í lífinu.Dætur hafsinsErótískur krimmi Súsönnu Svavarsdóttur, "Dætur hafsins" er kominn út hjá JPV útgáfu.Þegar blaðakonan Ragnhildur fær dagbækur Herdísar föðursystur sinnar í hendur opnast fyrir henni nýr og framandi heimur. Ragnhildur lifir fremur litlausu og hversdagslegu lífi en þegar Herdís er myrt með hrottalegum hætti breytist líf hennar á svipstundu. Hún er skyndilega stödd í heimi þar sem ekkert rúm er fyrir viðtekin gildi samfélagsins, leyndarmál afhjúpast og ástríður krauma. Um leið og Ragnhildur sogast inn í æsispennandi og stórhættulega hringiðu myrkra afla uppgötvar hún nýja og ókannaða hlið á sjálfri sér.Súsanna Svavarsdóttir fer ótroðnar slóðir í sinni fyrstu glæpasögu. Hér er á ferð æsileg, blóðheit spennusaga sem ögrar viðteknum gildum og þenur taugar lesandans til hins ýtrasta.TöfrabragðabókinJPV útgáfa hefur sent frá sér Töfrabragðabókina eftir Jón Víðis töframann. Í þessari skemmtilegu bók Jóns Víðis er að finna leyndardóminn á bakvið fjölda töfrabragða, allt frá gríngöldrum til töfra sem gera áhorfendur orðlausa.Með æfingu getur þú orðið að besta atriðinu í afmælinu, ættarmótinu, skemmtuninni, árshátíðinni eða hvar sem er. Bókin hentar öllum sem hafa áhuga á töfrabrögðum, jafnt byrjendum sem lengra komnum.Stórvirkið JörðinJörðin - Myndrænn leiðarvísir um reikistjörnu okkar, er komið út hjá JPV útgáfu. Jörðin er tímamótaverk þar sem saman fara frábærar ljósmyndir og vandaður texti, unninn af sérfræðingum. Hér er því hægt að kynnast mörgum sérkennilegustu og mögnuðustu stöðum jarðar - allt frá brennheitri Atacamaeyðimörkinni til ógnvænlegra eldgosa Etnu og frá ánni Níl til víðáttu Kyrrahafsins.Bókin er samstarfsverkefni Smithsonianstofnunarinnar í Bandaríkjunum og bókaútgáfunnar Dorling Kindersley. Ritstjóri íslensku útgáfunnar var Sigríður Harðardóttir og þýðendur eru: Sigurður Steinþórsson, Helga Þórarinsdóttir, Ágúst H. Bjarnason, Páll Bergþórsson, Jóhann Ísak Pétursson, Guðríður Arnardóttir og Völundur Jónsson. Yfirlestur annaðist Helgi Grímsson.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira