Stálinu stappað í íslenska karlmenn 28. nóvember 2005 10:00
Einleikur Auðuns Blöndal, Typpatal, í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar, snýst eins og nafnið gefur til kynna um typpi og allt sem tengist þeim. Einleikurinn var saminn af Richard Herring sem mótvægi við hinum vinsælu Píkusögum. Er hann byggður á könnun sem höfundurinn gerði á netinu og var beint jafnt til karla og kvenna. Sýningin með Audda í aðalhlutverki var nokkurs konar blanda af uppistandi og fyrirlestri. Þar skoðaði hann með hjálp skjávarpa svörin við hinum ýmsu spurningum sem lagðar voru fram í könnuninni, sem margir hafa eflaust spurt sjálfa sig að en ekki þorað að spyrja aðra. Þar komu fram ýmis skondin svör sem leiddu margt áhugavert í ljós varðandi kynlífshegðun almennings. Auddi talaði einnig um að nú á dögum skömmuðust karlmenn sín fyrir typpin sín og hvatti þá til að hætta því snarlega, enda voru þau stolt manna og yndi fyrr á öldum. Vangavelturnar um það hvort stærðin skipti máli voru einnig skemmtilegar. Reyndi hann hvað eftir annað að stappa stálinu í karlmenn og hvatti hann einnig konur til að sýna körlum meiri virðingu þegar kemur að typpunum þeirra. Auddi sýndi fádæma yfirvegun í frumraun sinni á leiksviði. Greinilegt er að hin gífurlega reynsla sem hann hefur úr sjónvarpinu hjálpar honum mikið. Ekki má gleyma danstöktum hans, því allt ætlaði um koll að keyra í salnum þegar hann brá sér í Michael Jackson-gírinn og braut þannig sýninguna skemmtilega upp. Langflestir brandararnir hittu í mark og átti Auddi auðvelt með að koma þeim frá sér á réttan hátt. Þýðanda verksins, Jóni Atla Jónassyni, hefur tekist vel upp í því að færa Typpasögurnar í íslenskt umhverfi og fór textinn aldrei yfir strikið í dónaskap. Ekki má heldur gleyma þátttöku Audda, Sigga Sigurjóns og Hallgríms Helgasonar í þýðingunni. Það sem helst mátti finna að sýningunni var sú staðreynd að hléið, sem átti að vera í 15 mínútur, teygðist upp í 35 mínútur og voru margir orðnir ókyrrir þegar Auddi mætti loksins aftur á sviðið. Einnig hefði Nasa mátt vera reyklaus með öllu, rétt eins og venjan er í leikhúsum. Mengað andrúmsloftið gæti orðið til þess að letja reyklausa áhorfendur til að sjá þessa annars skemmtilegu sýningu.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira