Bjartsýni um samkomulag 14. nóvember 2005 03:30 Hittist eftir hádegi. Forsendunefndin er bjartsýn á að samkomulag náist áður en tíminn rennur út á miðnætti annað kvöld. Nefndin hittist aftur eftir hádegi í dag.
Bjartsýni ríkir um að samkomulag náist í samningaviðræðum Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands. Forsendunefndin hittist aftur eftir hádegi í dag en fyrir hádegi ræða fulltrúar nefndarinnar við sína heimamenn innan ASÍ og SA. "Ég tel að það hafi þokast í viðræðunum en get samt ekki tíundað neitt öðru fremur. Það er bara verið að vinna í þessu og skoða alla þætti," sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um niðurstöðu fundar forsendunefndarinnar í gær. "Það er ekki komin niðurstaða en ég geri mér vonir um að hún náist samt sem áður. Það er margfalt meira hagsmunamál fyrir launþega og efnahagslífið í heild að ná saman. Mér finnst í raun fráleit niðurstaða fyrir okkur öll að missa málið út í það fen að ná ekki saman og segja upp samningum. Öll tíðindi úr umhverfinu finnst mér að styðji það frekar en ekki að niðurstaða eigi að geta náðst." Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, vildi ekkert segja um viðræðurnar í gærkvöld. "Það eru engin tíðindi af fundinum og lítið frá að segja. Við erum bara að vinna að þessu með sama hætti og áður og erum að ræða allt málið, ekkert öðru fremur. Það eru alltaf að fæðast og deyja tillögur og lítið frá því að segja. Vð þessar aðstæður er rangt að fara að tíunda það." Frestur til að segja upp kjarasamningum á almennum markaði rennur út á miðnætti annað kvöld og eru enn stór mál ófrágengin. Verkalýðshreyfingin hefur lagt áherslu á samkomulag um launahækkun, atvinnuleysistryggingar og myndarlegri aðkomu stjórnvalda að örorkubótum á almennum markaði en örorkubyrðin á markaðnum í heild sinni nemur um 3,5 milljörðum króna. Þá er stefnt að löggjöf um starfsmannaleigur og myndarlegan kraft í aukna möguleika á endurmenntun. Samkvæmt heimildum blaðsins er verkalýðshreyfingin bjartsýn.
Innlent Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Sjá meira