Höfðað til fólks undir fertugu 24. júní 2005 00:01
Sirkus, ný sjónvarpsstöð 365, hefur göngu sína klukkan tíu í kvöld. Stöðin sem verður í opinni dagskrá á aðallega að höfða til fólks undir fertugsaldri. Vikuritið Sirkus Reykjavík kom út í fyrsta sinn í dag en sjónvarpsstöðin sem ber sama nafn fer í loftið klukkan tíu í kvöld. Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri 365, sem á og rekur báða miðlana, segist ekki hræddur um að samkeppnin muni skemma fyrir Stöð tvö. Hann telji að það sé rúm fyrir fleiri stöðvar, sérstaklega stöðvar af þeirri tegund sem Sirkus er. Stöð 2 sé með allt öðruvísi efni og miklu dýrara og annarrar tegundar. Dagskrá Sirkuss verður send út í opinni dagskrá á örbylgju og UHF og eiga um 75 prósent landsmanna að geta náð henni til að byrja með en stefnt er að því að hækka það hlutfall þegar frá líður. Sirkusstjóri er Árni Þór Vigfússon. Gunnar Smári segist ekki hræddur við að ímynd fyrirtækisins skaðist þó svo dæmdur fjárglæpamaður sé ráðinn í stöðu Sirkusstjóra. Hann telji að fólk muni ekki eiga í vandræðum með að aðskilja fyrirtækjarekstur og dómstólana og þau svæði í samfélaginu þar sem menn taki út refsingu sína. Það liggi ekki á fyrirtækjum þessa lands að framfylgja dómum eða refsingum. Það sé dómstóla og fangelsisyfirvalda. Aðalsmerki sjónvarpsstöðvarinnar verður Kvöldþátturinn sem Guðmundur Steingrímsson hefur umsjón með fjögur kvöld í viku. Guðmundur vill þó ekkert segja til um hvernig þátt er um að ræða. Það verði að koma í ljós. Þátturinn heiti Kvöldþátturinn og þar séu skrifborð og sófi svo formið sé landsmönnum ekki ókunnugt. Þátturinn sé grafalvarlegur og ekkert verði fíflast. Guðmundur er ekkert stressaður heldur segist hann hlakka til.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira