Spilar á stórtónleikum í Noregi 11. júní 2005 00:01
Robert Plant, Annie Lennox, Nelson Mandela og Gulli Briem saman við ægifagra náttúru Norður-Noregs. Útkoman getur ekki orðið annað en stórfengleg. Mestu tónleikar í sögu Noregs verða haldnir í kvöld með þátttöku íslensku hljómsveitarinnar Earth Affair. Hljómurinn var taktfastur í gamla Valsheimilinu við Hlíðarenda þar sem hljómsveitin æfði sig fyrir tónleikana. Gunnlaugur Briem segir sveitina í raun eins manns band með mörgum aðstoðarmönnum en hann sé mikil félagsvera og vilji hafa sem flesta af vinum og samstarfsfélögum með sér. Tónleikarnir eru haldnir til að vekja athygli á útbreiðslu alnæmis um heimsbyggðina. Nafn tónleikanna, 46664, er fanganúmer Nelsons Mandela, en honum var haldið föngnum í 18 ár á Robben-eyju í Suður-Afríku. Það verða engin smá númer sem koma fram á tónleikunum. Peter Gabriel, Annie Lennox, Robert Plant ásamt fjölda annarra tónlistarmanna. Einn þeirra sem Gunnlaugur kallaði til spilamennsku er Jarleth Henderson, flautu- og pípuleikari frá Norður-Írlandi. Hann leikur á blásturshljóðfæri sem mjög erfitt er að leika á. Henderson segir það líklega eitt það erfiðasta að leika á í heiminu en það hafi verið fullyrt í blaði einu að það tæki um tvo áratugi að læra að leika á það. Gunnlaugur segir að Earth Affair hafi verið boðið að leika á tónleikunum í Noregi í kjölfar þess að hann hafi gefið út plötu í fyrra en henn hafi verið dreift víða. Gunnlaugur hefur mikinn áhuga á hjálparstarfi og segir að honum líði vel að geta notað tónlistina sem einhvers konar tæki til að gera eitthvað gott en ekki bara spila fyrir sjálfan sig eða aðra. Þarna gefist bæði tækifæri til að hjálpa og kynna tónlistina. Tónleikarnir hófust í dag og standa langt fram eftir kvöldi. Þeim er sjónvarpað víða þannig að milljónir manna munu fylgjast með hinni íslensku hljómsveit Earth Affair í kvöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira