Barneignir hafi góð áhrif á MS 11. júní 2005 00:01
Það hefur góð áhrif á konur með MS-sjúkdóminn að eignast börn, samkvæmt nýlegum rannsóknum, en lengi var það talið slæmt. Fulltrúar norrænna MS-félaga hafa síðustu daga fundað í húsnæði MS-félagsins á Íslandi og hefur megináherslan verið lögð á að ræða um unga fólkið og MS-sjúkdóminn, eða multiple sclerosis, sem er taugahrörnunarsjúkdómur. Þrír af hverjum fjórum sem greinast með sjúkdóminn eru konur um tvítugt eða á þrítugsaldri. Á fundinum hefur meðal annars verið rætt um það hvaða áhrif það hefur á ungt fólk að greinast og hvernig því gengur að aðlagast breyttum aðstæðum og lifa lífinu. Lengi hefur verið talið að konur með MS gætu farið illa út úr því að eignast börn þar sem því fylgdi svo mikið álag á líkamann að sjúkdómurinn gæti versnað. Nýlegar rannsóknir, meðal annars í Svíþjóð, benda hins vegar til þess að þessu kunni að vera þveröfugt farið og að það geri konum með sjúkdóminn gott að verða óléttar. Hormón sem myndast í líkama við þungun virðast hafa þau áhrif að líkurnar á því að sjúkdómurinn versni minnka. Steinunn Þóra Árnadóttir er 28 ára og greindist með MS-sjúkdóminn fyrir sjö árum. Hún eignaðist barn fyrir sjö vikum. Hún segir meðgönguna hafa verið draumi líkasta því einkenni sjúkdómsins hafi minnkað til muna, en það gæri þó verið tilviljun. Steinunn segir að tölfræðin segi að meðgangan sé yfirleitt mjög góður tími fyrir konur með MS-sjúkdóminn. Tölfræðin segi einnig að það verði stundum breyting upp úr fimmtugu hjá fólki með sjúkdóminn. Þá hætti einkennin að koma í köstum sem gangi til baka en fólki versni hægt án bataskeiða. Það virðist hins vegar sem meðgangan hafi einhver verndandi áhrif þannig að skeiðið með köstunum sem gangi til baka lengist. Vonandi hafi litla dóttir hennar þau áhrif að hún verið jafnvel hressari eftir fimmtugt en hún myndi ella verða.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira