Vill framkvæmdaáætlun til fimm ára 18. mars 2005 00:01
Kristín Ingólfsdóttir prófessor var í gær kjörin rektor Háskóla Íslands til næstu fimm ára og verður hún fyrsta konan til að gegna því embætti. Hún telur að styrkja þurfi fjárhag skólans og telur það best gert með því að deildir og stofnanir setji fram framkvæmdaáætlun til fimm ára. Talningu atkvæða lauk fyrir miðnætti og hlaut Kristín rétt rúm 53 prósent atkvæða og Ágúst Einarsson, mótframbjóðandi hennar, tæp 47 prósent. Tæp tíu þúsund manns voru á kjörskrá, þar af tæplega ellefu hundruð starfsmenn Háskólans. Þar var kjörsókn rösklega 74 prósent en aðeins rúm 24 prósent meðal þeirra tæplega níu þúsund nemenda sem voru á kjörskrá. Kristín Ingólfsdóttir, sem hefur doktorspróf í lyfjafræði, verður fyrsta konan til að gegna rektorsembætti við Háskóla Íslands og hún hefur ákveðnar hugmyndir um sóknarfæri skólans í náinni framtíð. Kristín segir alveg ljóst að Háskólinn sé feikilega sterk stofnun og þar hafi verið unnið ákaflega gott starf á undanförnum árum. Nú verði farið í að styrkja enn frekar þetta starf og skólinn búinn undir 21. öldina. Kristín segir að það þurfi að styrkja fjárhags skólans og hún telji að það verði best gert með því að setja fram framkvæmdaáætlun þar sem hver deild og hver stofnun leggi fram stefnu um hvernig hún vilji komast í fremstu röð sinna fræða á næstu fimm árum. Aðspurð hvort hún eigi við að efla eigi rannsóknarþáttinn í Háskólanum segir Kristín að svo sannarlega eigi að gera það. Þá verði framhaldsnámið og grunnámið einnig eflt, en þessir þættir þurfi allir að vera sterkir til þess að Háskóli Íslands standi undir nafni sem rannsóknarháskóli. Hún segir aðspurð að nauðsynlegt sé að blása til sóknar á þeim tímamótum sem háskólinn standi. Grunnur skólans sé traustur og nú þurfi að byggja á þeim grunni. Kristín er gift Einari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra hjá Flugleiðum, sem á sínum tíma var fyrsti útvarpsstjóri Bylgjunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fleiri fréttir Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Sjá meira