Stjörnugjöf vega 28. júní 2005 00:01
Nú í sumar verður byrjað á að meta vegi landsins og þeim gefnar stjörnur í einkunn eins og bílum og hótelum. Stjörnugjöfin er þegar hafin í um tíu löndum og hefur þegar skilað þeim árangri að vegir hafa verið bættir töluvert. Ólafur Guðmundsson, dómari í Formúlu 1 kappakstri og stjórnarmaður í Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, er að fara af stað með verkefnið með FÍB. Þessi stjörnugjöf, sem nefnist EURORAP, hefur verið við lýði í fimm ár í nokkrum löndum og hafa ný lönd verið að bætast í hópinn, nú síðast Bandaríkin og Ástralía. Ólafur segir þetta vegaeftirlit virka þannig að umhverfi veganna er metið og hvaða þættir mannvirkjanna eru að auka hættu, t.d. skilti sem byrgja sýn, grjót, staurar, hátt fall fram af vegum, fjarlægð og vegrið milli akreina o.fl. í þeim dúr. Kerfið hefur skilað miklum árangri í Svíþjóð og á Bretlandi. Á Bretlandi hafa vegirnir verið metnir í annað sinn og eru einnar stjörnu vegir nánst horfnir úr vegakerfinu. FÍB rekur verkefnið og eru þeir að kynna verkefnið fyrir samgönguráðuneytinu, Umferðarstofu og Vegagerðinni. í von um samvinnu. Ólafur segir markmiðið „fimm stjörnu bílar á fimm stjörnu vegum“, þ.e: öruggari umferð. Stefnt er að því að kort verði gefinu út með stjörnugjöf vega, auk þess sem hægt verður að nálgast hana á netinu. Sérútbúinn bíll með sérstökum tölvubúnaði verður notaður við að meta ástand veganna en oft þarf litlar breytingar til að fá ágætis einkunn.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira