Líst vel á hugmynd um óperuhús 28. júní 2005 00:01
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur varpað fram þeirri hugmynd að óperuhús verði reist á menningartorfunni í Kópavogi og telur að hún geti orðið fullbúin innan örfárra ára, ef drifið verði í málinu. Á menningartorfunni eru nú Gerðarsafn, Salurinn, bókasafnið og Náttúrugripasafnið. Gunnar segir að nóg pláss sé á torfunni fyrir 2.500 metra óperuhús sem geti tekið allt að 700 manns í sæti og gæti kostað um tvo milljarða króna. Hann hefur ekki kynnt hugmyndina fyrir bæjaryfirvöldum að svo komnu en hann telur að ríkið og Kópavogsbær eigi að koma að uppbyggingunni og að andvirði af sölu Óperuhússins við Ingólfsstræti eigi að renna upp í byggingarkostnað. Hann sér engin tormerki á að drífa málið áfram, ef vilji er fyrir hendi. Nafni hans, Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari, er mikill áhugamaður um uppbyggingu óperuhúss og hefur beitt sér eftir föngum að framgangi þess máls. Honum líst vel á hugmyndina enda segist hann sjálfur hafa lagt áherslu á að reyna að tengja listgreinar, og m.a. sviðslistgreinarnar, þ.á m. í tónlistarhúsinu í Reykjavík sem fyrirhugað er. Ekki virðist þó vera áhugi fyrir því að sögn Gunnars. Hann segir að í sjálfu sér skipti ekki máli hvar þetta verði en hagkvæmast væri að hafa alla vega óperuna og Sinfóníuhljómsveit Íslands í sama húsi. Einnig má sjá viðbrögð Jóns Karls Ólafssonar, varaformanns stjórnar Íslensku óperunnar, við hugmyndinni með því að smella á myndhlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira