Innlent

Verkalýðsleiðtogi bit á sinnuleysi lögreglu

"Lögreglan hefur gögn í höndunum sem sýna það svart á hvítu að starfsmanni hjá fyrirtæki Hjörleifs Jónssonar vantar allt að 300 þúsund í laun fyrir einn mánuð. Og ef lögreglan getur ekki tekið á því, hvert á þá Verkalýðsfélag Akraness að leita?" spyr Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélagsins.

Jón Sigurður Ólason yfirlögregluþjónn sagði í gær að rannsókn á litháískum starfsmönnum sem störfuðu hjá Trésmiðju Hjörleifs Jónssonar væri að mestu lokið.

Eins og áður hefur komið fram í Fréttablaðinu reyndust tveir starfsmenn vera án tilskilinna leyfa. "Grunur lék á að hugsanlega væru þeir fleiri en ekkert kom fram við rannsókn sem staðfesti þann grun," segir Jón Sigurður.

Hann segir að lögreglan rannsaki ekki atriði sem varði kjör mannanna en segir verkalýðsfélagið hafa það með höndum. Við þetta er Vilhjálmur mjög ósáttur og spyr hvort ekki sé til það yfirvald sem taki á því ef vinnuveitendur hlunnfari starfsmenn sína.

Vilhjálmur hefur einnig mikið út á ummæli Hjörleifs Jónssonar að setja sem hann lét falla í Fréttablaðinu síðastliðinn sunnudag. Þá sagði hann afskipti yfirvalda og verkalýðsfélagsins vera óviðunandi fyrir starfsmennina og að ekkert ætti eftir að koma úr rannsókninni sem gerð er á starfsmannamálum fyrirtækisins.

"Okkur hjá verkalýðsfélaginu er vart hlátur í huga yfir þessum ummælum," segir Vilhjálmur. "Stéttarfélagið hefur gögn og upplýsingar í höndum sem staðfesta að fyrirtækið er ekki að greiða þau laun sem ráðningasamningar Litháanna kveða á um. Ef Hjörleifur telur sig ekkert hafa að fela en er samt að greiða 300 þúsund krónum minna en starfsmaður á að fá, þá er ég hættur að skilja. Þeir atvinnurekendur sem ekki fara eftir þeim leikreglum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði eiga að hafa vit á því að skammast sín," segir Vilhjálmur.

Hjörleifur Jónsson hafði ekki fengið nein gögn frá lögreglunni um að rannsókn væri lokið og kýs því að tjá sig ekki um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×