Verkalýðsleiðtogi bit á sinnuleysi lögreglu 1. desember 2005 03:30 "
Lögreglan hefur gögn í höndunum sem sýna það svart á hvítu að starfsmanni hjá fyrirtæki Hjörleifs Jónssonar vantar allt að 300 þúsund í laun fyrir einn mánuð. Og ef lögreglan getur ekki tekið á því, hvert á þá Verkalýðsfélag Akraness að leita?" spyr Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélagsins. Jón Sigurður Ólason yfirlögregluþjónn sagði í gær að rannsókn á litháískum starfsmönnum sem störfuðu hjá Trésmiðju Hjörleifs Jónssonar væri að mestu lokið. Eins og áður hefur komið fram í Fréttablaðinu reyndust tveir starfsmenn vera án tilskilinna leyfa. "Grunur lék á að hugsanlega væru þeir fleiri en ekkert kom fram við rannsókn sem staðfesti þann grun," segir Jón Sigurður. Hann segir að lögreglan rannsaki ekki atriði sem varði kjör mannanna en segir verkalýðsfélagið hafa það með höndum. Við þetta er Vilhjálmur mjög ósáttur og spyr hvort ekki sé til það yfirvald sem taki á því ef vinnuveitendur hlunnfari starfsmenn sína. Vilhjálmur hefur einnig mikið út á ummæli Hjörleifs Jónssonar að setja sem hann lét falla í Fréttablaðinu síðastliðinn sunnudag. Þá sagði hann afskipti yfirvalda og verkalýðsfélagsins vera óviðunandi fyrir starfsmennina og að ekkert ætti eftir að koma úr rannsókninni sem gerð er á starfsmannamálum fyrirtækisins. "Okkur hjá verkalýðsfélaginu er vart hlátur í huga yfir þessum ummælum," segir Vilhjálmur. "Stéttarfélagið hefur gögn og upplýsingar í höndum sem staðfesta að fyrirtækið er ekki að greiða þau laun sem ráðningasamningar Litháanna kveða á um. Ef Hjörleifur telur sig ekkert hafa að fela en er samt að greiða 300 þúsund krónum minna en starfsmaður á að fá, þá er ég hættur að skilja. Þeir atvinnurekendur sem ekki fara eftir þeim leikreglum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði eiga að hafa vit á því að skammast sín," segir Vilhjálmur. Hjörleifur Jónsson hafði ekki fengið nein gögn frá lögreglunni um að rannsókn væri lokið og kýs því að tjá sig ekki um málið að svo stöddu.
Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira