Lífið

Fagrar sellóperlur

Gunnar Kvaran sellóleikari og Antonia Hevesi píanóleikari
Gunnar Kvaran sellóleikari og Antonia Hevesi píanóleikari

"Þetta er ofboðslega falleg tónlist," segir Antonia Hevesi píanóleikaru um nokkrar sellóperlur sem Gunnar Kvaran ætlar að flytja ásamt henni á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun.

"Það er líka svo gaman að spila með Gunnari. Ég hlakka virkilega til." Tónleikarnir hefjast klukkan tólf og standa yfir í um það bil eina klukkustund. Verkin sem þau flytja eru úr ýmsum áttum, bæði frá barokktímabilinu og rómantíska tímabilinu, þar á meðal Svanurinn eftir Saint-Saens og eldfjörug Tarantella eftir W. H. Squire.

"En við ætlum að byrja á Pieces en Concert eftir Couperin, sem er barokksvíta í fimm köflum." Antonia hefur skipulagt hádegistónleika í Hafnarborg, sem haldnir eru einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Hún fær jafnan til sín gest á hverjum tónleikum, ýmist söngvara eða einleikara og aðsóknin hefur jafnan verið mikil.

Aðgangur er ókeypis meðan húsrúm leyfir. Antonia stendur í ströngu þessa vikuna, því auk jólatónleika í Hafnarfjarðarkirkju leikur hún með Hlöðveri Sigurðssyni tenórsöngvara á útgáfutónleikum í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.