Innlent

Ekki forsenda fyrir rekstri herspítala

Keflavíkurflugvöllur. Enn er verið að draga saman í umsvifum á Keflavíkurflugvelli. Nú standa yfir viðræður milli varnarliðsins og heilbrigðisyfirvalda um yfirtöku þeirra síðarnefndu á stærstum hluta sjúkraþjónustu við varnarliðsmenn.
Keflavíkurflugvöllur. Enn er verið að draga saman í umsvifum á Keflavíkurflugvelli. Nú standa yfir viðræður milli varnarliðsins og heilbrigðisyfirvalda um yfirtöku þeirra síðarnefndu á stærstum hluta sjúkraþjónustu við varnarliðsmenn.

Landspítala - háskólasjúkrahúsi hefur borist erindi frá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli þess efnis, að LSH yfirtaki stærstan hluta þeirrar heilbrigðisþjónustu sem veitt hefur verið á hersjúkrahúsinu á Keflavíkurvelli, að sögn Jóhannesar M. Gunnarssonar framkvæmdastjóra lækningasviðs Landspítalans.

Fyrir skemmstu voru fulltrúar varnarliðsins meðal annars að skoða aðstöðuna á fæðingardeild Landspítalans, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

"Um þetta hefur verið rætt og jafnframt að varnarliðsspítalinn muni draga verulega úr sinni starfsemi, því tæpast sé forsenda fyrir því að reka þar sjúkrahús í þeirri merkingu sem við leggjum í það," segir Jóhannes.

"Herspítalinn muni eingöngu vera fyrir skamma legu og dagþjónustu. Leitað hefur verið til Landspítala um að taka að sér þyngri sjúkraþjónustu. Hins vegar fer starfsmönnum varnarliðsins sífellt fækkandi."

Spurður hvaða þættir heilbrigðisþjónustu myndu færast frá herspítalanum til Landspítala sagðist Jóhannes vilja taka það fram að alvarlega veikir varnarliðsmenn hafi hvort sem er verið lagðir inn á Landspítalann. Hann segir að nú sé rætt um miðlungs og léttari sjúkrahúsþjónustu, svo sem minni háttar meiðsl, botnlangabólgutilfelli, fæðingarhjálp og fleira á þeim nótum. Fæðingarhjálpin hafi til þessa verið veitt á herspítalanum og ekki hafi verið ákveðið hvort sjúkrahúsið í Keflavík muni að einhverju leyti taka þátt í þeirri þjónustu sem hætt verður að veita á herspítalanum.

Þá segir Jóhannes enn ekki hafa verið tímasett hvenær verði af þessum breytingum. "Það er ljóst að herspítalinn verður lagður niður í núverandi mynd," segir Jóhannes. "Þar verður rekin þjónusta sem er meira í ætt við öfluga heilsugæslu en sjúkrahús. Varnarliðið mun áfram reka slysamóttöku þar sem tekið verður á móti léttari tilvikum."

Jóhannes segir enn fremur að varnarliðið muni kaupa þjónustu af heilbrigðiskerfinu hér. Erindið frá varnarliðinu barst heilbrigðisyfirvöldum fyrir nokkrum vikum þar sem tilkynnt var að dregið yrði úr starfsemi herspítalans og óskað væri eftir viðræðum um þjónustu Landspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×