Óskar þess innilega að tekjur ríkissjóðs minnki 25. nóvember 2005 06:00 Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar; "Ég vona sem sagt að gengið láti undan og kaupmátturinn rýrni og þar með að tekjur ríkissjóðs minnki."
Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar segist vona að úr einkaneyslu landsmanna dragi á næsta ári og tekjur ríkissjóðs minnki af þeim sökum. "Ég vona það innilega vegna þess að skuldasöfnun einstaklinga á þessu ári er skelfileg og hefnir sín grimmilega," segir Einar Oddur. Samkvæmt áliti meirihluta fjárlaganefndar verður afgangur ríkissjóðs um 19 milljarðar króna á næsta ári. Í annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið á Alþingi í gær kom fram í máli Einars Odds að hann teldi líklegt að þessi afgangur yrði í raun mun minni. "Ég vona að þetta verði svo. Ég vona að gengið láti undan. Ég vona að það dragi úr kaupum á erlendum varningi og einkaneyslan minnki. Það verður að gerast á næsta ári vegna þess að ég tel að framleiðsluatvinnuvegirnir hafi ekki meira þanþol. Ég vona sem sagt að gengið láti undan og kaupmátturinn rýrni og þar með að tekjur ríkissjóðs minnki." Einar Oddur telur að ríkissjóður hafi vel efni á því að sjá af umtalsverðum tekjum. "Þetta eru óeðlilegar tekjur sem ríkissjóður hefur í dag sem við sjáum í þessum mikla viðskiptahalla. Það er því óeðlilegt að ríkissjóður sé að hafa svona miklar tekjur og ég vona að þær hverfi því við höfum ekkert með þær að gera." Einar Oddur sagði það viðvarandi veikleika Íslendinga að láta undan launakröfum og kallaði það lausung í efnahagslífinu. Einar Oddur gagnrýndi sérstakar heimildir stjórnvalda til fjárútláta og nefndi sérstaklega heimild ríkisins til að fjármagna tónleikahöll í Reykjavík. "Þátttaka ríkisins á að vera að minnsta kosti 6 milljarðar króna. Ef ríkið á að taka þátt í kostnaði við að reisa þessa tónlistarhöll þá verður að leggja það fyrir þingið. Ég hef ástæðu til að ætla að menn séu að átta sig á að svona lausung gengur ekki. Það þarf að láta reyna á það hvort þingið sé sammála svona útgjöldum."
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Fleiri fréttir Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Sjá meira