Byrlaði fórnarlambi ólyfjan og nauðgaði 19. nóvember 2005 06:00 Stefán H. Ófeigsson. Á sér engar málsbætur.
Bæjarferð tveggja átján ára stúlkna síðustu helgina í nóvember í fyrra endaði með skelfingu þegar önnur þeirra varð fyrir svívirðilegri árás af hendi 27 ára gamals Reykvíkings, Stefáns H. Ófeigssonar. Hann var á fimmtudag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga stúlkunni, en grunur leikur á að hann hafi byrlað henni einhvers konar nauðgunarlyfi. Þá var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 900 þúsund krónur í miskabætur og tæpar 590 þúsund krónur í sakarkostnað. Dómurinn taldi framburð stúlkunnar trúverðugan og Stefáns að sama skapi ekki, en hann harðneitaði fyrir dómi að hafa átt við hana kynferðisleg samskipti. Hann þóttist hjá lögreglu geta fullyrt að hafa ekki laumað neinu í drykk stúlkunnar og vissi upp á hár hversu mikið hafði verið drukkið af hvítvíni sem hann bauð upp á, en bar fyrir sig minnisleysi sökum ölvunar um önnur atriði. "Ég man ekki eftir þessu. Þar af leiðandi er illmögulegt fyrir mig að útiloka eitthvað," sagði hann þegar hann spurður um hvort hann vildi kannast við að hafa haldið stúlkunni fastri og troðið fingri í endaþarm hennar þegar hún ætlaði að fara heim. Vinkona stúlkunnar þurfti að fara fyrr þannig að hún varð ein eftir hjá Stefáni umrædda nótt. Hann höfðu vinkonurnar hitt þegar langt var liðið á nótt. Hann kynnti sig sem verkfræðing og bauð þeim heim í hvítvín. Í dóminum kemur fram hvernig stúlkan brast í grát þegar hún þurfti að rifja upp hvernig hann í framhaldinu nauðgaði henni og setti lim sinn bæði í leggöng hennar og endaþarm. Þá kemur fram að minni hennar af atburðum er gloppótt og hún sýndi einkenni þess eftir árásina að vera undir áhrifum lyfja. Að kvöldi næsta dags sagði hún móður sinni frá því að hana grunaði að sér hefði verið nauðgað og fóru þær saman á neyðarmóttöku. Í dómnum kemur fram að Stefán hafi ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi sem áhrif hefðu getað haft á refsingu hans. "Við ákvörðun refsingar ber að líta til þess að brot ákærða var sérlega ruddafengið og gróft og einkenndist af einbeittum ásetningi. Þó svo brotaþoli gæfi ákærða skýrlega til kynna að hann meiddi hana og að kynferðislegt athæfi hans væri algerlega gegn hennar vilja skirrðist ákærði ekki við að beita brotaþola ofbeldi. Ákærði á sér engar málsbætur," segir í dómnum, en hann kváðu upp dómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Páll Þorsteinsson og Símon Sigvaldason.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Sjá meira