Nýtt fjölþjóðlegt samstarf um vetni 17. nóvember 2005 05:00 Jón Björn Skúlason er framkvæmdastjóri Íslenskrar nýorku, sem fer fyrir nýjum fjölþjóðasamstarfsvettvangi á sviði vetnisrannsókna.
Unnið er að stofnun formlegs samstarfsvettvangs Íslendinga, Norðmanna, Færeyinga og Grænlendinga á sviði vetnisrannsókna. Verið er að huga að sameiginlegum verkefnum en samtökin, North Atlantic Hydrogen Association, á að stofna formlega á fundi á Grænlandi í ágúst á næsta ári. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar nýorku, segir að Norræna Atlantsnefndin, NORA, hafi styrkt verkefnið um 250.000 danskar krónur, eða um sem nemur tæpum 2,5 milljónum króna. Íslensk nýorka er tengiliður og þungamiðja samstarfsins en Jón Björn gerir ráð fyrir því að samstarfsaðilum fjölgi þegar á líður. "Styrkurinn á að nægja til að koma þessu af stað, en svo sjá samtökin sjálf um fjármögnun í framtíðinni," segir hann og telur ýmislegt unnið með samstarfinu við nágrannaþjóðir okkar. "Þessi lönd hafa verið að skoða þann möguleika að koma inn í vetnisheiminn. Grænland sótti meðal annars um aðild að International Partnership for Hydrogen Economy sem Ísland er aðili að. Löndin hafa verið að leita eftir upplýsingum til okkar og við töldum rétt að koma á formlegum samskiptum þarna á milli," segir hann og bætir við að einnig hafi verið horft til þess að betur hentaði að taka þátt í víðtækara alþjóðlegu samstarfi í félagi við þessi lönd. "Það hefur meiri áhrif út á við og svo opnar þetta möguleika á nýjum verkefnum og eins aukna fjármögnunarmöguleika." Jón Björn segir lykilsamstarfið eiga að felast í skiptum á upplýsingum, auk þess að setja af stað sameiginleg verkefni sem nýtist öllum. Hann segir með ráðum gert að hafa ekki upphafsráðstefnuna hér á landi, því með því að vera annars staðar megi kynna verkefnið betur almenningi og fyrirtækjum. "Hér er meiri þekking á þessu en víða annars staðar. Svo höfum við fundið fyrir mjög sterkum pólitískum stuðningi við verkefnið í öllum þessum löndum."
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fleiri fréttir Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Sjá meira