Samkynhneigð pör fái að ættleiða börn 17. nóvember 2005 03:30 Halldór Ásgrímsson
Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp til laga sem eykur rétt samkynhneigðra til jafns við gagnkynhneigðra á mörgum sviðum. Frumvarpið á að leggja fyrir Alþingi á næstu dögum. "Í frumvarpinu felst að samkynhneigðir geti fengið óvígða sambúð skráða í Þjóðskrá og það verður til þess að þeir njóta sömu réttinda og aðrir bæði um almannatryggingar, skattalega meðferð, lífeyrisréttindi og skiptingu á dánarbúi og fleira. Samkynhneigðum verður heimilt að ættleiða börn og þar með verður sá réttur jafnaður. Í síðasta lagi má nefna að kona í staðfestri samvist með annarri konu hefur rétt til að gangast undir tæknifrjóvgun með gjafasæði líkt og við á um gagnkynhneigð pör," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og telur mikilvæg skref stigin í jafnréttisátt. "Um þetta er mikil og góð samstaða í ríkisstjórninni." Halldór segir að málefni kirkjunnar standi einungis út af. "Kannski má segja að það sé eina atriðið sem ekki er alveg ljóst og við höfum ekki haft bein afskipti af, en það er spurningin um vígslu í kirkjulegri athöfn," segir hann og bætir við að í nefndaráliti komi fram hvatning til kirkjunnar að taka þar afstöðu. "Þetta eru frábærar fréttir," segir Sólveig Eiríksdóttir, kennari á Hellissandi, sem er þar í sambúð með Snædísi Hjartardóttur. "Við urðum mjög hissa þegar við komumst að því að við máttum ekki skrá okkur í sambúð. Þarna sýnist mér við jafnvel komin framar en Danir," segir hún. Verði frumvarpið að lögum segir Sólveig það gjörbylta allri réttarstöðu samkynhneigðra, sem loks nálgist að standa jafnfætis gagnkynhneigðum hvað réttindi varðar. "Svo munar um það fyrir lesbísk pör að sleppa við ferðalög til Danmerkur eftir tæknifrjóvgun, enda er það bæði dýrt og tímafrekt."
Innlent Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Fleiri fréttir Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Sjá meira