Ölvaður kjaftar frá 16. nóvember 2005 06:30 Jón ólafsson.Á blaðamannafundi í gær talaði Jón Ólafsson athafnamaður tæpitungulaust um að Davíð Oddsson hefði lofað skattrannsóknarstjóra auknu fé til þess að leggjast í rannsóknir á skattamálum Jóns og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. "
f einhver tekur eitthvað til sín úr bókinni þá skelfur viðkomandi eflaust. Það er allt satt og rétt sem er í bókinni. Ef einhver sér sig knúinn til þess að svara fyrir sig eða verja sig þá er það vegna þess að viðkomandi hefur slæma samvisku,"sagði Jón Ólafsson athafnamaður á blaðamannafundi í gær. Fundurinn var haldinn í tilefni þess að út hefur komið bók eftir Einar Kárason sem lýsir ævi og viðskiptaferli Jóns. Á fundinum vakti athygli að Jón talaði tæpitungulaust um að starfsmaður hjá embætti skattrannsóknarstjóra hefði sagt frá því drukkinn að Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, hefði boðið embættinu tuttugu milljón króna aukafjárveitingu gegn því að skattrannsókn yrði gerð á Jóni Ólafssyni og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, framkvæmdastjóra Baugs. "Það var hringt í mig og mér gerð grein fyrir því að þessi ágætis maður, nei sleppum því, þessi stofnanamaður, hafi verið á fylleríi út í bæ og sagt þar við vin sinn að honum hafi verið boðnar tuttugu milljóna króna aukafjárveitingar, tvö ár í senn, gegn því að hann færi í mig og Jón Ásgeir," var orðalag Jóns. Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknarstjóri tekur ásakanir Jóns ekki til sín og segir þær ekki svaraverðar. Hann sé stakur bindindismaður og fjöldi fólks geti staðfest það. Einar Kárason, höfundur bókarinnar, telur líklegt að einhver styr muni skapast um bókina. "Ef ég þekki Jón rétt verður engin lognmolla í kringum þessa bók. Kvöldið fyrir útgáfu voru strax kviknaðir logar, segir Einar og á þar við viðtal sem flytja átti í Kastljósi RÚV í fyrrakvöld en ekki reyndist unnt að flytja."
Innlent Mest lesið „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Erlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Innlent Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Innlent Fleiri fréttir Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru Sjá meira