Skuldir lækka um milljarð 15. nóvember 2005 04:00 Styrk fjármálastjórn. Borgarstjóri er afar ánægður með þá fjárhagsáætlun fyrir næsta ár sem lögð verður fyrir borgarstjórn. Segir hún hana sýna að staða borgarinnar sé sterk ólíkt því sem margir vilji vera láta. "
Þetta frumvarp að fjárhagsáætlun ber með sér að borgarbúar eru að uppskera árangur traustrar fjármálastjórnar í borginni undanfarin ár," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Borgarstjóri kynnti í gær fjárhagsáætlun sína fyrir næsta ár. Þar kemur fram að hreinar skuldir borgarinnar eiga að lækka um rúman milljarð króna og gert er ráð fyrir 1,4 milljarða króna rekstrarafgangi. Heildartekjur borgarsjóðs eru áætlaðar rúmar 45 milljarðar króna sem er tæpum tíu prósentum meira en gert er ráð fyrir á yfirstandandi ári. Á móti hækka rekstrargjöld úr tæpum 39 milljörðum í tæpa 42 milljarða en áætlanir gera ráð fyrir að rekstrarafgangur verði nálægt 1,4 milljörðum króna, sem er öllu hærra en þær tæpu fimm hundruð milljónir sem útkomuspá þessa árs gerir ráð fyrir. Bókfærðar heildareignir munu lækka á tímabilinu um fimm milljarða króna, fyrst og fremst sökum sameiningar Fráveitu og Orkuveitu Reykjavíkur. Heildarskuldir borgarsjóðs munu lækka um rúma átta milljarða króna miðað við að útkomuspá þessa árs og áætlanir þess næsta náist. Hefur heildarskuldastaða borgarinnar því ekki verið betri síðustu fjögur ár. Sem fyrr vega menntamál þyngst í útgjöldum sjóðsins í áætluninni. Alls 46 prósent allra útgjalda eru eyrnamerkt til menntastofnana af einu eða öðru tagi. Velferðarmál taka sextán prósent en önnur mál mun minna. Steinunn Valdís segir að skattar og gjöld á hvern borgarbúa séu með því lægsta sem gerist í þéttbýli í borginni og að borgarsjóður muni njóta þeirra þenslu sem fyrirsjáanleg er á næsta ári í formi hækkandi útsvari og væntanlega lægri útgjöldum vegna fjárhagsaðstoðar af ýmsu tagi. Borgarstjóri segir að fjárhagsáætlunin sýni að staða borgarsjóðs sé sterk þrátt fyrir tal margra um að svo sé ekki og að miðað við þá þjónustu og verkefni sem borgin innti og ætlaði sér að inna af hendi fyrir íbúa sína sé um góða og heilbrigða áætlun að ræða. "Auðvitað erum við með útsvarsprósentuna í toppi en það er hluti af okkar áætlun. Við viljum fremur fá eins mikið og hægt er og nota það fé í samfélagslega sjóði sem öllum borgarbúum nýtast. Þess vegna getum við haldið þjónustu ódýrri, boðið gjaldfrjálsan leikskóla og lækkað fasteignagjöld eins og hugmyndir okkar standa til."
Innlent Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Vilhjálmur verður bæjarstjóri Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira