Heimamenn og Vegagerð deila um nýja Ölfusárbrú 14. nóvember 2005 06:00
Ágreiningur er um byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá en tvær tillögur liggja fyrir í nýju aðalskipulagi Árborgar fyrir tímabilið 2005-2025. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út eftir viku. Sveitarstjórnarmenn í Árborg og Hraungerðishreppi vilja byggja brú yfir miðja Efri-Laugardælaeyju, eins og gert er ráð fyrir í núgildandi aðalskipulagi, en Vegagerðin mælir með að brúin verði byggð nálægt ferjustað Laugardælaferju. Málamiðlunartillaga gerir ráð fyrir að vegurinn sveigist nær bænum þegar yfir brúna er komið. Syðri leiðin er talin stuðla að betri innbyrðis tengslum og dreifingu umferðar til strandbyggðar og dreifbýlis. Sú staðsetning er einnig talin geta haft heftandi áhrif á þróun byggðarinnar og skorið byggðarkjarnana sundur. Í báðum tillögum skerðist golfvöllurinn, meira þó samkvæmt nyrðri leiðinni, en ef brúin og vegurinn færast fjær Selfossi fær bærinn meira byggingarland. Gert er ráð fyrir að kostnaður við tvær brýr, yfir í Efri-Laugardælaeyju og þaðan aftur í land, verði 700-800 milljónir króna en kostnaður við hina tillöguna yrði 450-500 milljónir. Heildarmunurinn er því um 300 milljónir króna. Sveitarstjórnarmenn styðja syðri leiðina og telja að sú leið kæmi betur út fyrir byggðina á Selfossi, umferðin yrði eðlilegri og það takmark næðist frekar að flytja þungaflutninga út fyrir bæinn. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segir að Vegagerðin hafi mælt með nyrðri leiðinni þar sem undirstöður brúarinnar yrðu öruggari ef til jarðskjálfta kæmi en það hafi líka haft áhrif að sá kostur hafi verið talinn ódýrari. Guðmundur Kr. Jónsson, formaður skipulagsnefndar Árborgar, segist ekki eiga von á öðru en að brú yfir Efri-Laugardælaeyju yrði samþykkt. Hann telur að framkvæmdin komist á vegaáætlun eftir 2012.
Innlent Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira