Handjárnaður eftir að yfirbuga ræningja 11. nóvember 2005 05:00 Magnús Gunnarsson leigubílstjóri Magnús fékk vopnaða konu í bílinn. Hann náði að afvopna konuna áður en lögreglu bar að garði. "
Það fyrsta sem ég sá þegar ég kom út úr bílnum var þrír lögreglumenn með hjálma og byssur á lofti sem þeir beindu að henni. Ég æddi beint þangað og ætlaði að reyna að hugga stelpuna. Þeir hrintu mér frá og settu mig í handjárn," segir Magnús Gunnarsson, leigubílstjóri í Reykjavík. Magnús varð fyrir því í fyrrakvöld að vopnuð kona reyndi að ræna af honum fé. Honum tókst með lagni að afvopna konuna. Magnús er ósáttur við framgöngu lögreglu í málinu og telur að nægilegt hefði verið að tveir lögreglumenn fjarlægðu konuna úr bílnum þar sem hann hafi verið búinn að afvopna hana. Hann íhugar nú málsókn á hendur lögreglunni fyrir háttalagið. "Ég finn mjög mikið til með þessari stelpu. Ég er mjög tilfinninganæmur. Ef fólki líður illa þá finn ég til með því," segir Magnús. Hann hafði reynt að róa konuna í bílnum á meðan þau biðu eftir lögreglu og Magnús hafði meðal annars sagt henni að nú myndi henni berast sú hjálp sem hún þyrfti á að halda, en hann telur að hún hafi verið að kalla á hjálp með þessum örþrifaráðum sínum. "Þarna var um að ræða útkall þar sem tilkynnt hafði verið um vopn. Um það gilda ákveðnar verklagsreglur sem eru hannaðar til þess að tryggja öryggi allra," segir Hörður Jóhannesson "Alltaf þegar um vopnaburð er að ræða kallar það á öðruvísi nálgun. Í fræðunum er stundum talað um Stokkhólms-heilkennið. Það er þekkt að það getur átt við þegar kynin eru saman í svona stöðu eða þegar frelsissvipting beinist gegn konu," segir Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík. Stokkhólms-heilkennið svokallaða kemur til sögunnar þegar fólk sem tekið er í gíslingu öðlast samúð með málstað þess sem veldur frelsissvipingunni.
Innlent Mest lesið Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Sjá meira