Innlent

Aldraðir sjómenn heiðraðir

Sjómennirnir Eyjólfur Eyjólfsson, Eiríkur Eiríksson, Grétar Bjarnason, Sigfús Jóhannsson og Eyjólfur Guðjónsson voru heiðraðir við Miðbakkann í Reykjavík í gær fyrir ævistörf sín. Einnig hlaut Bragi Ragnarsson viðurkenningu fyrir fyrirmyndarvélstjórastörf. Eyjólfur Guðjónsson, sem lét af störfum árið 2000 eftir 58 ára farsælt starf við sjómennsku og útgerð, sagði það mikinn heiður að hljóta viðurkenninguna. "Þetta er bara góð tilfinning og mikill heiður eftir langa veru á sjó," sagði Eyjólfur. Hann sigldi í tíu ár á togurum og meðal annars var hann 16 ára ráðinn sem háseti á Venusi frá Hafnarfirði árið 1942. Hann segist aldrei hafa lent í neinum ævintýrum að ráði á þessum styrjaldarárum. "Maður vissi ekki af þeim hættum sem voru í kringum mann. Maður komst ekki að því fyrr en síðar." Aðspurður sagði Eyjólfur það stórkostlegt að sjómannadagurinn sé haldinn hátíðlegur ár hvert því þessi dagur auðgi mannlífið svo mikið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×