Innlent

Minntust fallinna félaga

Ungir menn um borð í tveimur herveðurathugunarvélum áttu ekki afturkvæmt úr þeim ferðum fyrir sex áratugum síðan. Félagar þeirra minntust þeirra og rifjuðu upp ljúfsárar minningar í Fossvogskirkjugarði í dag. Tugir erlendra hermanna eru grafnir í Fossvogskirkjugarði, flestir þeirra bráðungir menn rétt yfir tvítugu sem týndi lífi í seinni heimsstyrjöldinni hér við land. Meðal þeirra eru félagar í 251. herdeild breska flughersins sem var staðsett hér á landi frá sumrinu 1944 til vetursins 1945 og hafði hér það hlutverk að fara í hættuleg veðurkönnunaflug. Ekki áttu allar áhafnirnar endurkvæmt úr ferðum sínum. Félagar þeirra, sem nú eru á níræðisaldri og margir hverjir nokkuð veikburða, komu í dag saman í kirkjugarðinum til að minnast þeirra. Þjóðfánum hermannanna var stillt upp hjá gröfum þeirra og breskur prestur vígði minnivarða. Archibald Clark er einn þeirra sem var hér á landi sem tvítugur piltur og kunni því vel. Hann segir að þegar menn séu tvítugir sætti menn sig við slíkt. Honum og félögum hans hafi fundist veturinn erfiðastur vegna kuldans og snjóarins. Þess vegna hafi flestir þeirra haldið sig í bröggunum og spilað bridds eða haft ofan af fyrir sér með öðrum hætti. Á þessum aldri lærist mönnum að taka hlutunum eins og þeir eru og í flughernum og öðrum deildum hersins verði menn að gera það, menn séu þjálfaðir til þess. Archibald segir lífið hafa verið ánægjulegt hér. Það hefði getað verið miklu verra annars staðar. Hermennirnir gista allir á Hótel Borg þar sem þeir voru líka með bækisstöðvar í stríðinu og sagði Archibald að það hefði verið notalegt að sjá hversu lítið hefði breyst á hótelinu, það hefði vakið minningar um góðar stundir með félögunum fyrir 60 árum. Og þrátt fyrir háan aldur hittast hermennirnir sem hér voru enn. Archibald segir að á sextugasta árinu hafi þeir séð að þeir væru ekki nema ellefu eftir og því hafi þeir velt fyrir sér hvort viturlegt væri að halda áfram að hittast. Niðurstaðan hafi verið sú að halda áfram þangað til þeir yrðu svo fáir að það tæki því ekki að skipuleggja það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×