Minntust fallinna félaga 5. júní 2005 00:01
Ungir menn um borð í tveimur herveðurathugunarvélum áttu ekki afturkvæmt úr þeim ferðum fyrir sex áratugum síðan. Félagar þeirra minntust þeirra og rifjuðu upp ljúfsárar minningar í Fossvogskirkjugarði í dag. Tugir erlendra hermanna eru grafnir í Fossvogskirkjugarði, flestir þeirra bráðungir menn rétt yfir tvítugu sem týndi lífi í seinni heimsstyrjöldinni hér við land. Meðal þeirra eru félagar í 251. herdeild breska flughersins sem var staðsett hér á landi frá sumrinu 1944 til vetursins 1945 og hafði hér það hlutverk að fara í hættuleg veðurkönnunaflug. Ekki áttu allar áhafnirnar endurkvæmt úr ferðum sínum. Félagar þeirra, sem nú eru á níræðisaldri og margir hverjir nokkuð veikburða, komu í dag saman í kirkjugarðinum til að minnast þeirra. Þjóðfánum hermannanna var stillt upp hjá gröfum þeirra og breskur prestur vígði minnivarða. Archibald Clark er einn þeirra sem var hér á landi sem tvítugur piltur og kunni því vel. Hann segir að þegar menn séu tvítugir sætti menn sig við slíkt. Honum og félögum hans hafi fundist veturinn erfiðastur vegna kuldans og snjóarins. Þess vegna hafi flestir þeirra haldið sig í bröggunum og spilað bridds eða haft ofan af fyrir sér með öðrum hætti. Á þessum aldri lærist mönnum að taka hlutunum eins og þeir eru og í flughernum og öðrum deildum hersins verði menn að gera það, menn séu þjálfaðir til þess. Archibald segir lífið hafa verið ánægjulegt hér. Það hefði getað verið miklu verra annars staðar. Hermennirnir gista allir á Hótel Borg þar sem þeir voru líka með bækisstöðvar í stríðinu og sagði Archibald að það hefði verið notalegt að sjá hversu lítið hefði breyst á hótelinu, það hefði vakið minningar um góðar stundir með félögunum fyrir 60 árum. Og þrátt fyrir háan aldur hittast hermennirnir sem hér voru enn. Archibald segir að á sextugasta árinu hafi þeir séð að þeir væru ekki nema ellefu eftir og því hafi þeir velt fyrir sér hvort viturlegt væri að halda áfram að hittast. Niðurstaðan hafi verið sú að halda áfram þangað til þeir yrðu svo fáir að það tæki því ekki að skipuleggja það.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira