Innlent

Sjómenn eru undirstaðan

Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, hélt ræðu í sjómannadagsmessu í Grafarvogskirkju í gærmorgun. Sagði hann að sjómenn væru undirstaðan í íslensku atvinnulífi en ekki bankar og fjármálafyrirtæki. Hann sagði að sjómenn hefðu fært Ísland inn í nútímann en ekki hagfræðingar, bankar eða stjórnmálamenn. Árni minntist einnig þeirra fimm hundruð sjómanna frá Vestmannaeyjum sem hafa farist undanfarna öld, þ.e. að meðaltali fimm á ári hverju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×