Innlent

Sjómannadegi fagnað í góðu veðri

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag víðast hvar í góðu veðri og með mikilli þátttöku almennings. Það voru nokkuð hefðbundin skemmtiatriði á sjómannadeginum, í Reykjavík: björgunaræfingar, kappróður, koddaslagur og þar fram eftir götunum. Einnig gafst gestum tækifæri til þess að fara í siglingu með Sæbjörginni og biðu margir þolinmóðir í óratíma eftir að kæmi að þeim. Eins og var veitt heiðursmerki Sjómannadagsins. Að þessu sinni hlutu það þeir Eyjólfur Guðjónsson skipstjóri, Eyjólfur Eyjólfsson matsveinn, Eiríkur Eiríksson sjómaður, Grétar Bjarnason sjómaður og Sigfús Jóhannsson vélstjóri. Bragi Ragnarsson yfirvélstjóri fékk að þessu sinni Neistann sem veittur er fyrir fyrimyndarvélstjórn. Unga fólkið setti mjög svip sinn á daginn. Alls kyns leiktækjum hafði verið komið fyrir fyrir þau og einnig ýmsu fræðsluefni, svo sem körum með mismunandi fiskitegundum. Allt þetta féll í góðan jarðveg og var meðtekið ásamt óteljandi pylsum. Líklega hefði pylsuætunum orðið dálítið bumbult ef þær hefðu sest upp í flugvél sem lék ótrúlegustu kúnstir yfir höfninni. Sem fyrr segir var dagurinn víðar haldinn hátíðlegur. Við sjómannamessu í Grafarvogi flutti Árni Johnsen hugvekju. Á Sauðárkróki komu ungir sem aldnir saman í tilefni dagsins. Þar var einnig kappróður og margt til gamans gert til dæmis slegist rösklega með koddum. Og þeir sem töpuðu fengu ískalt bað í sjónum en sjóböð hafa jú alltaf verið talin holl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×