Sjómannadegi fagnað í góðu veðri 5. júní 2005 00:01
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag víðast hvar í góðu veðri og með mikilli þátttöku almennings. Það voru nokkuð hefðbundin skemmtiatriði á sjómannadeginum, í Reykjavík: björgunaræfingar, kappróður, koddaslagur og þar fram eftir götunum. Einnig gafst gestum tækifæri til þess að fara í siglingu með Sæbjörginni og biðu margir þolinmóðir í óratíma eftir að kæmi að þeim. Eins og var veitt heiðursmerki Sjómannadagsins. Að þessu sinni hlutu það þeir Eyjólfur Guðjónsson skipstjóri, Eyjólfur Eyjólfsson matsveinn, Eiríkur Eiríksson sjómaður, Grétar Bjarnason sjómaður og Sigfús Jóhannsson vélstjóri. Bragi Ragnarsson yfirvélstjóri fékk að þessu sinni Neistann sem veittur er fyrir fyrimyndarvélstjórn. Unga fólkið setti mjög svip sinn á daginn. Alls kyns leiktækjum hafði verið komið fyrir fyrir þau og einnig ýmsu fræðsluefni, svo sem körum með mismunandi fiskitegundum. Allt þetta féll í góðan jarðveg og var meðtekið ásamt óteljandi pylsum. Líklega hefði pylsuætunum orðið dálítið bumbult ef þær hefðu sest upp í flugvél sem lék ótrúlegustu kúnstir yfir höfninni. Sem fyrr segir var dagurinn víðar haldinn hátíðlegur. Við sjómannamessu í Grafarvogi flutti Árni Johnsen hugvekju. Á Sauðárkróki komu ungir sem aldnir saman í tilefni dagsins. Þar var einnig kappróður og margt til gamans gert til dæmis slegist rösklega með koddum. Og þeir sem töpuðu fengu ískalt bað í sjónum en sjóböð hafa jú alltaf verið talin holl.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira