Innlent

Elsti bíll landsins seldur

"Með þessu móti höldum við þessum elsta bíl landsins í þeim mikla bílabæ Selfossi," segir Hilmar Pálsson, en hann keypti um helgina ásamt félaga sínum Sigurði Karlssyni, elsta bíl landsins. Bíllinn er Dodge Brother árgerð 1923 en hann var keyptur til landsins og gerður upp 1993 af Sverri Andréssyni á Selfossi. Mun bíllinn verða til sýnis á bílasölu þeirra félaga, Betri bílar, um ókomna tíð en hann er vel gangfær og eins og nýr segja þeir sem ekið hafa. Þeir félagar vildu ekki gefa upp kaupverðið en segja það skipta engu máli. Fyrir öllu sé að bíllinn verði áfram á Selfossi en ekki seldur annað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×