Rifjar upp gamlar minningar 12. nóvember 2005 13:00 Sellólaust tríó með horni. Þau Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Joseph Ognibene hornleikari og Peter Maté píanóleikari skipa Tríó Reykjavíkur á tónleikum í Hafnarborg annað kvöld.
Tríó Reykjavíkur hefur fengið Joseph Ognibene hornleikara til liðs við sig á tónleikum sínum í Hafnarborg á morgun. Hann tekur sæti Gunnars Kvarans sellóleikara og spilar sem gestur tríósins með þeim Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara og Peter Maté píanóleikara. "Ég er að spila Beethoven-sónötu sem ég hef ekki leikið síðan ég var sextán ára," segir Joseph, sem hlakkar til að rifja upp gömul kynni af þessari þekktu hornsónötu Beethovens. "Beethoven spilaði þetta verk sjálfur á sínum tíma með manni sem hét Giovanni Punto. Hann var hornvirtúós á sínum tíma, líklega fyrsti hornvirtúós sögunnar. Þetta var mjög merkilegur maður. Það þekktu hann allir í Vínarborg og allir vildu spila með honum, en hann hét í raun og veru allt annað á tékknesku. Hann var flóttamaður frá Bæheimi og mjög umdeildur. Í heimalandinu voru þeir svo reiðir út í hann að það var send skipun um að handtaka hann, eða í það minnsta að slá úr honum tennurnar." Þessa sónötu leikur Joseph með Peter Maté píanóleikara, en hann leikur einnig tríó eftir Brahms með þeim Guðnýju og Peter. "Ég hef spilað Brahms-tríóið áður með Guðnýju og svo hef ég líka spilað það með Peter, en við þrjú höfum aldrei leikið það saman fyrr en núna." Joseph Ognibene er frá Bandaríkjunum en hefur búið hér á landi í nærri aldarfjórðung. "Ég kom hingað 23 ára gamall til að spila með Sinfóníunni. Núna er ég 48 ára gamall svo ég hef verið hér meira en fimmtíu prósent ævinnar." Hann segist engan veginn sjá eftir því að hafa flutt hingað á sínum tíma, enda hafi hann haft nóg að gera í tónlistinni, leikið með Sinfóníuhljómsveitinni, starfað sem kennari og komið fram sem einleikari við ýmis tækifæri. "Ég hef komið fram sem einleikari með Sinfóníunni, en ekki gert svo mikið af því að leika einleik með píanóleikara. Þess vegna líka hefur þetta Beethoven-tríó orðið útundan. En þetta er mjög skemmtilegt tríó og reynir á öll tónsvið hljóðfærisins." Á tónleikunum flytja þau Guðný og Peter einnig Vorsónötu Beethovens fyrir fiðlu og píanó. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 annað kvöld.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira