Lýsi á dag kemur beinum í lag 12. nóvember 2005 03:45 Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur hvetur fólk til þess að taka lýsi, D-vítamíntöflur eða D-vítamínbættar mjólkurvörur eftir að rannsókn hennar leiddi í ljós að það er líkamanum jafnvel enn mikilvægara en að fá mikið kalk. "
Hingað til hefur verið lögð mikil áhersla á það að fólk taki nóg af kalki en þessi rannsókn leiðir í ljós að það sem skiptir jafnvel meira máli er að fólk fái nóg D-vítamín því án þess er kalkið ekki að virka," segir Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur. Rannsóknin var unnin á Landspítalanum í samvinnu við Lýðheilsustöð og grein þar sem minnst er á hana birtist í nýjasta tölublaði bandaríska læknatímaritsins The Journal of the American Medical Association. Höfundar greinarinnar auk Laufeyjar eru Örvar Gunnarsson, Ólafur S. Indriðason, Leifur Franzson og Gunnar Sigurðsson. "Í þessari grein hvetjum við lækna til að beina þeim tilmælum til sinna skjólstæðinga að taka D-vítamín aukalega þar sem það er að finna í svo fáum fæðutegundum. Lýsi er einnig fyrirtaks lausn á þessu en það innheldur nægilegt D-vítamín." Auk lýsisins getur fólk fengið D-vítamín úr síld, laxi og silungi en þar sem slíkt er ekki alltaf á boðstólum hvetur hún fólk til að taka D-vítamíntöflur eða D-vítamínbættar mjólkurvörur. Það sem gerist ef D-vítamín skortir er að kalkið verður ekki í réttu hlutfalli í blóðinu og því fer líkaminn að vinna kalk úr beinunum, sem er ávísun á beinþynningu.
Innlent Mest lesið Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Fleiri fréttir Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Sjá meira